Archive for category Upplýsingar
Um sölt og steinefni
Posted by gisli in Upplýsingar on 28/07/2010
Félagi Börkur sendi mér tengil á þessa grein, http://blog.firstendurance.com/2010/06/electrolyte-considerations-for-ironman-athletes/
sem fjallar um sölt, steinefni og önnur efni sem er að finna í matvælum og orkudrykkjum. Þetta er þörf lesning fyrir alla sem ætla lengra en maraþon, einkum væntanlega járnbræður mína og járnsystur sem ætla að þrauka í hálfan sólarhring eða þar um bil í Kaupinhafn, að ógleymdum þeim sem ætla kringum Fjallið Hvíta, Mont Blanc, uppáhaldsfjall Bibbu, Barkar og Ásgeirs. Laugavegsfarar sem hafa glímt við krampa og þess háttar önugheit, ættu einnig að lesa.
Tímastjórnun
Posted by hhinriks in Upplýsingar on 14/03/2010
Það vefst fyrir mörgum að finna tíma til að stunda æfingar og hreinlega sökum anna (fjölskyldan, vinna, skóli svo eitthvað sé nefnt) er ekki hægt að koma æfingum fyrir í dagskránni.
Sólahringurinn er 24 klukkustundir ef við tökum sólahringinn og skiptum honum í þrennt þá getum við gert ráð fyrir að 8 klukkustundir fari í svefn, 8 klukkustundir fari í vinnu þá eru þarna 8 klukkustundir sem þarf að greina frekar. Það er hægt að áætla slatta tíma í að koma sér í og úr vinnu, klæða og fæða börnin, eitthvað sjónvarpsáhorf og halda úti heimili. Það er pottþétt einhver tími afgangs í æfingar. Það er líka alltaf spurning um rétta hugafarið. Farðu í smá greiningu á því hvernig þú nýtir tíma þinn, kannaðu hvort þú komir ekki æfingum fyrir í dagskránni.
Jákvætt viðhorf – [Karen]
Posted by hhinriks in Upplýsingar, Þríþraut on 12/03/2010
Karen Axels hefur verið dugleg að senda inn pistla á mbl.is og kíkir undirritaður reglulega inn á síðuna til að kanna hvort að nýtt efni hafi borist.
Nú síðast sendi hún inn pistilinn “Jákvætt viðhorf” kíktu á hann.
Morgunæfing “Protein tips”
Posted by hhinriks in Upplýsingar on 02/02/2010
Dave Scott skýrir út af hverju úthaldsíþróttafólk þarf að innbyrgða meiri prótein en flest annað fólk! + nokkrar ágætar ábendingar um góða næringu fyrir æfingu.
Grunnþjálfun
Posted by hhinriks in Upplýsingar, Þríþraut on 29/01/2010
Hér er virkilega góð grein eftir Mark Allen um grunnþjálfun (base training)
Vísindin að baki sokkanna !
Posted by hhinriks in Upplýsingar on 31/12/2009
Eða “The Science Behind Your Socks”
Það er að mörgu að huga þegar kemur að því að kaupa sér sokka.
Hér má sjá góða grein um þetta efni.
Þríþrautasamband Íslands
Posted by admin in Upplýsingar on 05/12/2009
Á aðalfundi ÞRÍR í gærkvöldi var samþykkt að hefja undirbúning að stofnun þríþrautasambands Íslands. Í stjórn þess myndu eiga sæti fulltrúar allra þríþrautafélaga á landinu. Núna eru þegar starfandi félög í Reykjavík, Hafnarfirði, Vestfjörðum og einherjar á Selfossi og víðar munu fyrr eða síðar stofna smá félag utan um sig. Ritari þessara lína mun kalla saman undirbúningsfund með fulltrúum félaga og öðrum áhugamönnum eftir áramót. Sambandið verður andlit þríþrautafólks út á við og leitast við að breiða út fagnaðarerindið í sem ríkustum mæli.
Á aðalfundinum var að öðru leyti farið yfir keppnir ársins, kynntar keppnir á komandi ári og þríþrautafólk ársins var tilkynnt. Fyrir valinu urðu María Ögn Guðmundsdóttir og Steinn Jóhannsson, sem þóttu öðrum sigursælli og fengu þau gjafabréf í Afreksvörum í Glæsibæ.
Margar keppnir eru fyrirhugaðar næsta sumar, allt frá sprettþraut í Kópavogi upp í hálfan Ironman í Hafnarfirði. Einnig verður ólympísk þraut í Hafnarfirði í samvinnu ÞRÍR og ÞRÍH. Stóra takmarkið er þó CHallenge Kaupmannahöfn 15. ágúst en þangað stefna nú 25 manns.
Chrissie Wellington
Posted by admin in In English, Upplýsingar, Áhugaverðir Tenglar on 30/11/2009
Rudy Garcia Tolson
Posted by admin in Upplýsingar, Áhugaverðir Tenglar on 27/11/2009
Þegar Rudy var 12 ára heimsótti hann Ísland. Þá birtist þetta viðtal í Mbl. (mars 2001)
Rudy var fimm ára er hann missti báðar fætur um mið læri. Þrátt fyrir það keppir hann í sundi, hjólreiðum og hlaupi
ÉG vil hvetja öll fötluð börn til að taka þátt í íþróttum miðað við getu og umfram allt aldrei að gefast upp heldur láta draumana rætast,” sagði Rudy Garcia-Tolson, sem hingað er kominn frá Kaliforníu. Hann er hér í boði Össurar hf. og keppir sem gestur á Íslandsmóti fatlaðra í sundi, sem fram fer í Sundhöllinni um helgina, en hann notar vörur frá fyrirtækinu. Rudy er tólf ára og ótrúlega kraftmikill og lætur ekkert stoppa sig enda er kjörorð hans; “Hugrekki er öflugt vopn.”
Hann fæddist með sjaldgæfa erfðasjúkdóma og þegar hann var fimm ára hafði hann gengist undir 15 árangurslausar aðgerðir til að bjarga fótunum. Þrátt fyrir ungan aldur bað hann lækna um að fjarlægja fæturna því hann vildi geta hreyft sig og leikið sér eins og önnur börn og það var gert.
Ári eftir aðgerðina fór Rudy að æfa sund. Fyrst í lítilli laug en eftir því sem hann náði betri árangri færði hann sig yfir í stærri laugar og til betri félaga og um leið betri þjálfara. Hann keppir ekki eingöngu í sundi þó svo sundið sé hans uppáhald.
Sund, spretthlaup og þríþraut
Rudy keppir einnig í spretthlaupi, hjólreiðum og keppti í þríþraut í fyrsta sinn tveimur árum eftir að hann missti fæturna. Rudy sagðist hlaupa mílu (1,6 km) á 6 mín 15 sek og þrjár mílur á 22 mín. 15. sek.
Árið 1998 og 1999 tók hann þátt í landsmóti fatlaðra, sem haldið var í Minniapolis og árið 2000 keppti hann um þátttöku í Ólympíuleikum fatlaðra í Indianapolis. “Það gekk mjög vel,” sagði Rudy. “Á síðasta ári vann ég tvenn gullverðlaun og þrenn silfurverðlaun.” Samtals hefur hann unnið til tólf verðlauna, sem verður að segjast að er ansi góð frammistaða miðað við aldur.
Rudy æfir í tvær klukkustundir daglega, fimm daga vikunnar og segist ekki vera þreyttur. Hann hefur gengið í skóla í sex ár og hefur ekki misst úr einn einasta dag ef frá eru taldir fimm dagar í Chicago en þangað fór hann til að telja kjark í fötluð börn og brýna fyrir þeim að gefast ekki upp. Reyndar hefur hann ferðast um Bandaríkin þver og endilöng og rætt við nemendur um líf sitt og íþróttir en aðallega að til að telja kjark í fatlað ungt fólk. “Það er gaman í skólanum og ég vil hvetja alla til að sækja hann vel og gefast ekki upp því menntun gefur bestu möguleikana í framtíðinni,” sagði hann. “Krakkarnir líta á mig sem jafningja og enginn fer öðruvísi með mig en aðra. Ég er mjög ákveðinn og veit hvað ég vil.”
Þríþraut á Hawaii
En hver eru framtíðaráformin? “Ég hef gaman af tölvum og stefni á að verða kerfisfræðingur þegar ég verð stór,” sagði Rudy “Og svo er það þríþrautarkeppnin á Hawaii, sem er mjög erfið en ég ætla samt að reyna við og vinna. Þú verður að synda fjórar mílur í sjónum, hjóla 130 mílur og hlaupa 26,1 mílu. En ég verð að vera 18 ára til að fá að vera með.”
Rydy er mjög þakklátur þeim, sem hafa stutt hann og þá sérstaklega Össuri hf., en án stuðnings frá fyrirtækinu hefði hann ekki náð árangri í íþróttum.
Þetta er nýleg mynd af Rudy:

Hann lét drauminn rætast og tók þátt í Ironman í Kona á Havaí eins og minnst er á í þessari grein..
Því miður náði hann ekki tímamörku á hjólinu en mætir á efa að ári og reynir aftur.
Einar og Havaí
Posted by admin in Upplýsingar on 27/11/2009
Mbl: 18.júlí, 1996
ÞRÍÞRAUTARKAPPINN Einar Jóhannsson gerði það gott um helgina í undankeppni fyrir hina svokölluðu Iron-man þríþrautarkeppni, sem haldin verður á Hawai síðar á þessu ári.
Keppnin fór fram í Roth í Þýskalandi og gerði Einar sér lítið fyrir og tryggði sér sæti í aðalkeppninni á Hawai, lenti í 13. sæti í sínum aldursflokki og 115. sæti í heildina. “Ég er mjög sáttur við árangurinn þó að ég hefði að vísu viljað hlaupa á aðeins betri tíma. Það var erfitt að venjast hitanum á þessum stutta tíma, sem ég var í Þýskalandi en samt bætti ég mig um 21 mínútu frá því í fyrra. Ég er búinn að skrá mig til keppni á Hawai en hvort ég tek svo þátt í henni verður fjárhagurinn síðar á árinu að skera úr um,” sagði Einar í samtali við Morgunblaðið í gær.
Keppendur voru 2.450 í undankeppninni í Þýskalandi en alls er talið að um 20.000 manns muni bítast um þau 1.500 sæti, sem í boði eru á Hawai. Keppt er í 3,8 kílómetra sundi, 180 kílómetra hljólreiðum og 42,2 kílómetra maraþonhlaupi og var tími Einars um helgina 9 klukkustundir, 24 mínútur og 53 sekúndur.


Ummæli