Archive for category Keppnir
Hálf ólympísk þraut í Hafnarfirði
Það viðraði ágætlega í morgun þegar 16 keppendur voru ræstir í Ásvallalaug og svömluðu þar sína 750 metra, hver með sínum stíl. Fyrstur upp úr lauginni var Ólafur Marteinsson og síðan kom Jón Hugi, Kristín Laufey, Helgi Hinriks og María Ögn, sem stytti sumarfríið sitt til að ná einni þraut fyrir haustið. Allir skiluðu sér upp úr og þá tók við hjólaleggurinn þar sem nokkur vindur var í fangið upp Krísuvíkurveginn en meðvindur niðureftir sem skilaði keppendum háum tölum á hraðamæli og eins gott að lögreglan var ekki til svæðis.
Forskot Óla var orðið að tæpum sjö mínútum þegar hjólinu lauk en þar fór Helgi mikinn og kom annar inn. 2 mínútum síðar kom Trausti og reyndi ákaflega að ná Helga, náði besta hlaupatíma dagsins við það, en Helgi hélt öðru sætinu. Fjórði var Gunnar Stefáns, sem að eigin sögn á mikið inni á sundinu en átti mjög góðan dag á hjóli og hlaupum. Fimmta í mark var svo María Ögn, sigurvegari í kvennaflokki.
Öll úrslit er að finna á hlaup.com, ásamt millitímum og þar má margan fróðleiksmolann finna. Keppnin þótti annars takast vel og settu börn keppenda skemmtilegan svip á áhorfendasvæðið þar sem þau biðu spennt og fengu auðvitað Prins póló og banana að smjatta. Vífilfell sá um drykkina með milligöngu herra Formannsins og Ásbjörn Ólafsson gaf Prins póló með milligöngu Þórólfs. Þar að auki lagði ÍBH til keppnisstjóra og sundlaug og SH-félagar sáu um talningu. Gott er að eiga góða að, enda yrði engin keppni ef ekki fengist starfsfólk.
HEILDARÚRSLIT Hálf Ólympísk
| Röð | Nafn | Fæð.ár | 750 M | 20 km | 5 km | Samtals |
| 1 | Ólafur Marteinsson | 1988 | 00:10:43 | 00:32:54 | 00:20:31 | 01:04:09 |
| 2 | Helgi Hinriksson | 1972 | 00:13:39 | 00:36:12 | 00:21:07 | 01:10:58 |
| 3 | Trausti Valdimarsson | 1957 | 00:14:47 | 00:37:13 | 00:19:59 | 01:12:00 |
| 4 | Gunnar Stefánsson | 1980 | 00:17:00 | 00:37:18 | 00:21:21 | 01:15:39 |
| 5 | Jón Hugi Harðarson | 1963 | 00:12:10 | 00:43:32 | 00:21:57 | 01:17:41 |
| 6 | María Ögn | 1980 | 00:14:28 | 00:41:08 | 00:22:25 | 01:18:02 |
| 7 | Hartmann Bragason | 1953 | 00:16:39 | 00:40:44 | 00:23:52 | 01:21:17 |
| 8 | Margrét Pálsdóttir | 1978 | 00:18:22 | 00:38:50 | 00:24:48 | 01:22:01 |
| 9 | Valgeir Pétursson | 1967 | 00:18:00 | 00:41:00 | 00:23:08 | 01:22:09 |
| 10 | Ásmundur Helgi Steindórsson | 1976 | 00:15:20 | 00:43:29 | 00:23:44 | 01:22:34 |
| 11 | Kristín Laufey Steinadóttir | 1979 | 00:13:16 | 00:45:19 | 00:24:18 | 01:22:55 |
| 12 | Corinna Hoffmann | 1973 | 00:17:15 | 00:42:57 | 00:24:39 | 01:24:52 |
| 13 | Sigurður Örn Eiríksson | 1970 | 00:19:56 | 00:42:26 | 00:22:55 | 01:25:18 |
| 14 | Stefanie Gregersen | 1976 | 00:16:31 | 00:40:40 | 00:30:37 | 01:27:48 |
| 15 | Jón Sigþór Jónsson | 1973 | 00:19:34 | 00:44:09 | 00:26:43 | 01:30:27 |
| 16 | Stefán Reynisson | 1979 | 00:20:53 | 00:45:25 | 00:24:40 | 01:30:59 |
| Flokkaúrslit Karlar | ||||||
| Röð | Nafn | Fæð.ár | 750 M | 20 km | 5 km | Samtals |
| 1 | Ólafur Marteinsson | 1988 | 00:10:43 | 00:32:54 | 00:20:31 | 01:04:09 |
| 2 | Helgi Hinriksson | 1972 | 00:13:39 | 00:36:12 | 00:21:07 | 01:10:58 |
| 3 | Trausti Valdimarsson | 1957 | 00:14:47 | 00:37:13 | 00:19:59 | 01:12:00 |
| 4 | Gunnar Stefánsson | 1980 | 00:17:00 | 00:37:18 | 00:21:21 | 01:15:39 |
| 5 | Jón Hugi Harðarson | 1963 | 00:12:10 | 00:43:32 | 00:21:57 | 01:17:41 |
| 6 | Hartmann Bragason | 1953 | 00:16:39 | 00:40:44 | 00:23:52 | 01:21:17 |
| 7 | Valgeir Pétursson | 1967 | 00:18:00 | 00:41:00 | 00:23:08 | 01:22:09 |
| 8 | Ásmundur Helgi Steindórsson | 1976 | 00:15:20 | 00:43:29 | 00:23:44 | 01:22:34 |
| 9 | Sigurður Örn Eiríksson | 1970 | 00:19:56 | 00:42:26 | 00:22:55 | 01:25:18 |
| 10 | Jón Sigþór Jónsson | 1973 | 00:19:34 | 00:44:09 | 00:26:43 | 01:30:27 |
| 11 | Stefán Reynisson | 1979 | 00:20:53 | 00:45:25 | 00:24:40 | 01:30:59 |
| Flokkaúrslit konur | ||||||
| Röð | Nafn | Fæð.ár | 750 M | 20 km | 5 km | Samtals |
| 1 | María Ögn | 1980 | 00:14:28 | 00:41:08 | 00:22:25 | 01:18:02 |
| 2 | Margrét Pálsdóttir | 1978 | 00:18:22 | 00:38:50 | 00:24:48 | 01:22:01 |
| 3 | Kristín Laufey Steinadóttir | 1979 | 00:13:16 | 00:45:19 | 00:24:18 | 01:22:55 |
| 4 | Corinna Hoffmann | 1973 | 00:17:15 | 00:42:57 | 00:24:39 | 01:24:52 |
| 5 | Stefanie Gregersen | 1976 | 00:16:31 | 00:40:40 | 00:30:37 | 01:27:48 |
ÞríR Femmes rokkar
Það var kvennalið Þríþrautarfélags Reykjavíkur „ÞríR Femmes“ sem vann liðakeppni kvenna í Bláalónsþraut 2010 – 60km fjallahjól. Réttu úrslitin komu því miður ekki í ljós á keppnisdeginum en engu að síður vorum við fljótastar á tímanum 8:11:30. Fengum við gullpenninga og gjafabréf á Lava-restaurant í Bláa lóninu. Við gerðum okkur ferð suðureftir í gær og gæddum okkur á gómsætum mat og skáluðum fyrir sigrinum. Það var ofsalega skemmtilegt og við stelpurnar kynntumst betur. Þökkum HFR fyrir gott framtak!
Og þetta er liðið (frá vi): Corinna Hoffmann, Inga Dagmar Karlsdóttir, Hulda Björk Pálsdóttir, Hérdís M. Guðjónsdóttir, Rúna Rut Ragnarsdóttir.
Intersport-Hálfkarlinn 2010
Það gekk á með sól og logni þegar keppendur í hálfkarlinum stilltu upp hjólum sínum og hituðu upp fyrir sundlegginn. 33 keppendur lögðu af stað, 31 stakir og 2 lið. Fyrsti maður synti á 24 mínútum, enda fulltrúi liðs en Steinn og Torben, sem reiknað var með að berðust um sigurinn, voru báðir vel undir hálftímanum. Síðan voru hjólfákar beislaðir og lagt af stað.
Allar aðstæður voru eins og best verður á kosið og árangurinn var líka í samræmi við það. Torben og Hákon Hrafn voru í sérflokki á hjólaleggnum, báðir á 2 tímum, 21 mínútu, Steinn hjólaði á 2.31 en Helgi Hinriksson, fulltrúi Bjartsmanna, kom ekki á óvart með fjórða besta hjólatímanum, enda búinn að æfa eins og MF. Flestir bættu hjólatíma sinn annars mikið, enda bauð veðrið upp á það.
Á hlaupinu ráðast úrslitin. Þar át Steinn upp forskot Torbens og Hákonar og kom í mark á nýju Íslandsmeti, 4 tímum, 23 mínútum og 13 sekúndum. Torben fór einnig undir gamla metið og Hákon bætti sig um 45 mínútur, kom í mark á 4:34. Á eftir þeim kom svo Vignir Sverrisson, sem átti annan besta hlaupatíma dagsins, 1.31, og félagi hans, Gylfi, var skammt á eftir. Þetta er merkilegur árangur í ljósi þess að æfingar þeirra fyrir járnkarlinn í Kaupinhafn hafa verið miklar undanfarna mánuði og hvíldu þeir ekki fyrir þessa keppni.
Helga Árnadóttir kom að norðan, vígði nýja keppnishjólið sitt og hljóp svo eins og vindurinn eftir það. Hún stórbætti íslandsmetið, fór á 5 tímum og 20 mínútum og munaði þar mest um gott hálfmaraþon, þar sem hún náði níunda besta tímanum í heildina. Hulda Björk Pálsdóttir fór einnig undir gamla metið á 5:27 og Margrét Pálsdóttir sýndi mikla keppnishörku þegar hún tryggði sér þriðja sætið.
Það er gaman að skoða millitíma og árangur keppenda. Margir bættu sig ákaflega mikið og Kaupinhafnarfarar fengu dýrmætt innlegg í reynslubankann. Spennandi verður að fylgjast með árangri þeirra þar. Það þarf heldur ekki að gúgla mikið til að sjá að árangur Íslandsmeistaranna, Steins og Helgu, myndi skila þeim langt á alþjóðlegum mótum.
Allt skipulag keppninnar var með miklum ágætum og verður starfsfólkinu seint fullþakkað fyrir sitt framlag. Án þess væri svona keppni ekki haldin og ómetanlegt að eiga gott fólk að. Það átti stóran þátt í stemmningu dagsins með hvatningum til keppenda og góðu skapi.
ÞRÍ, ÍBH og Sundfélag Hafnarfjarðar hélt keppnina og var Róbert Pétursson mótsstjóri. Hann fær ekki mikla hvíld því eftir tvær vikur verður boðið upp á hálfa ólympíska þraut í Ásvallalaug og á Krísuvíkurvegi. Þar verður án efa góð mæting.
Skoðið myndasýninguna hér til hægri á síðunni.
Viðbót:
Stóra fjölmiðlamálið saga í þremur köflum um eina mínútu
Aðalritarinn í útvarpsviðtali
Í morgun vaknaði Gísli Ásgeirsson snemma og hitti þá félaga Frey og Guðmund í Morgun útvarpinu á Rás 2.
Hálfur járnkarl í Hafnarfirði á sunnudaginn.
Næstkomandi sunnudag verður keppt í hálfu járnkarli í Hafnarfirði. Keppendur munu synda tæpa 2 kílómetra, hjóla 90 kílómetra og hlaupa 21.1 kílómetra. Gísli Ásgeirsson kom í Morgunútvarpið og sagði frá keppninni, en þessi erfiðu íþróttagrein nýtur mikilla vinsælda hér á landi um þessar mundir. Gísli sagði svona keppni eingöngu fyrir þá sem eru í góðu formi.
Skráning í Intersport hálfa járnkallinn 2010
Til að auðvelda við skráningu í Intersport hálfa járnkallinn er hægt að ýta á linkinn hér fyrir neðan og þá fer maður beint í skráningaformið hjá hlaup.is.
https://secure.islandia.is/hlaup/skraningar/SkraningHalfurJarnkarl2010.asp
Þegar skráning hefur farið fram þá er æskilegt að viðkomandi sendi sem fyrst upplýsingar um sundtíma fyrir 1,9 km sund til mótshaldara, viðtakandi er Róbert (robert.petursson@gmail.com).
Karen okkar!
Karen Axelsdóttir var að gera það gott í Bretaveldi nú um helgina, gerði sér lítið fyrir og sigraði á bresku meistaramóti áhugamanna.
Hér er hlekkur í pistlasíðu Karenar á mbl.is
Hér má sjá heildarúrlist keppninnar
Ólympísk þríþraut úrslit
33 keppendur mættu galvaskir til leiks í Mekka þríþrautarinnar í Hafnarfirði nú í morgun til að þreyta Ólympíska þríþraut. Syntir voru 1500m í 50m Ásvallalaug, hjólaðir 40km í Vallahverfi og upp á Krýsuvíkurveg og hlaupnir 10km á göngustígum við jaðar Vallahverfis. Sem betur fer þurfti ekki að fresta keppni sökum öskufoks en ástandið hefur verið vægast sagt frekar skaðlegt í þeim efnum síðustu daga á höfuðborgarsvæðinu.
Hér má sjá myndir af viðburðinum sem teknar eru af Jóhannesi Rúnari Jóhannessyni.
Heilarúrslit
| Röð | Nafn | Félag | Fæð.ár | Sund 1,5 | Hjól 40 | Hlaup 10 | Samtals |
| 1 | Torben Gregersen | Team Craft | 1974 | 00:22:36 | 01:02:16 | 00:39:44 | 02:04:37 |
| 2 | Ólafur Marteinsson | Optima Racing Team | 1988 | 00:19:33 | 01:04:40 | 00:43:35 | 02:07:50 |
| 3 | Steinn Jóhannsson | Team Craft | 1968 | 00:21:25 | 01:08:54 | 00:38:16 | 02:08:35 |
| 4 | Vignir Þór Sverrisson | ÞríR/ÍR | 1975 | 00:27:01 | 01:07:21 | 00:41:13 | 02:15:36 |
| 5 | Gylfi Guðnason | ÞríR | 1965 | 00:24:10 | 01:10:41 | 00:41:00 | 02:15:51 |
| 6 | Hákon Hrafn Sigurðsson | HFR | 1973 | 00:27:36 | 01:15:31 | 00:39:01 | 02:22:09 |
| 7 | Viðar Bragi Þorsteinsson | Degaul | 1972 | 00:25:05 | 01:16:25 | 00:41:46 | 02:23:16 |
| 8 | Trausti Valdimarsson | ÞríR | 1956 | 00:27:19 | 01:13:44 | 00:42:25 | 02:23:29 |
| 9 | Magni – Ólafur – Hugi | Bjartur | 1968 | 00:24:57 | 01:12:33 | 00:46:45 | 02:24:15 |
| 10 | Baldur Már Helgason | Reykjavík | 1975 | 00:23:55 | 01:14:36 | 00:47:07 | 02:25:38 |
| 11 | Bergþór Jóhannsson | Bjartur | 1968 | 00:24:41 | 01:12:27 | 00:53:33 | 02:30:42 |
| 12 | Gunnar Stefánsson | Garðabær | 1980 | 00:31:16 | 01:15:14 | 00:46:52 | 02:33:23 |
| 13 | Ásgeir Elíasson | Bíddu aðeins/þrír | 1962 | 00:25:36 | 01:21:00 | 00:46:59 | 02:33:36 |
| 14 | Hulda Björk Pálsdóttir | Þrir | 1963 | 00:26:59 | 01:21:44 | 00:45:39 | 02:34:23 |
| 15 | Darius Hubecki | Þrír | 1975 | 00:32:21 | 01:23:03 | 00:43:45 | 02:39:10 |
| 16 | Eva Margrét Einarsdóttir | Asics liðið/ÍR | 1970 | 00:36:05 | 01:19:27 | 00:44:42 | 02:40:16 |
| 17 | Geir Ómarsson | Reykjavík | 1974 | 00:36:28 | 01:23:40 | 00:41:54 | 02:42:03 |
| 18 | Oddur Kristjánsson | Laugaskokk | 1962 | 00:31:52 | 01:23:14 | 00:47:09 | 02:42:16 |
| 19 | Oddgeir Gylfason | Árbæjarskokk | 1959 | 00:28:43 | 01:22:27 | 00:51:28 | 02:42:39 |
| 20 | Pétur Helgason | Árbæjarskokk | 1956 | 00:34:17 | 01:23:42 | 00:45:32 | 02:43:32 |
| 21 | Hálfdán Freyr Örnólfsson | SH | 1972 | 00:24:23 | 01:25:13 | 00:56:03 | 02:45:41 |
| 22 | Gísli Héðinsson | Reykjavík | 1969 | 00:32:33 | 01:22:20 | 00:51:51 | 02:46:46 |
| 23 | Einar Finnur Valdimarsson | ÞríR | 1967 | 00:36:37 | 01:21:45 | 00:50:31 | 02:48:54 |
| 24 | Sigurbjörg Eðvarðsdóttir | ÍR | 1957 | 00:36:09 | 01:30:21 | 00:44:17 | 02:50:48 |
| 25 | Margrét Pálsdóttir | HFR | 1977 | 00:37:31 | 01:20:35 | 00:53:17 | 02:51:24 |
| 26 | Corinna Hoffmann | ÞríR | 1972 | 00:32:45 | 01:25:43 | 00:55:02 | 02:53:32 |
| 27 | Haukur J. Eiríksson | Hafnarfjörður | 1966 | 00:34:53 | 01:29:09 | 00:49:57 | 02:54:00 |
| 28 | Davíð Elvar Marinósson | Reykjavík | 1978 | 00:28:27 | 01:29:48 | 00:55:50 | 02:54:05 |
| 29 | Valgeir Pétursson | Garðabær | 1966 | 00:33:34 | 01:25:03 | 00:56:09 | 02:54:47 |
| 30 | Gísli Pálsson | Bjartur | 1967 | 00:39:57 | 01:23:37 | 01:03:32 | 03:07:06 |
| 31 | Hrefna Sylvía Sigurgeirsdóttir | Bíddu Aðeins | 1976 | 00:28:00 | 01:34:31 | 01:05:56 | 03:08:28 |
| 32 | Agust Bjarnason | Hollywood | 1977 | 00:36:03 | 01:54:49 | 01:00:58 | 03:31:52 |
| 33 | Stefanie Gregersen | DISQUALIFIED | 1976 | 00:29:10 | 01:24:23 | 00:56:52 | 02:50:27 |
| Röð | Nafn | Félag | Fæð.ár | Sund 1,5 | Hjól 40 | Hlaup 10 | Samtals |
| 1 | Torben Gregersen | Team Craft | 1974 | 00:22:36 | 01:02:16 | 00:39:44 | 02:04:37 |
| 2 | Ólafur Marteinsson | Optima Racing Team | 1988 | 00:19:33 | 01:04:40 | 00:43:35 | 02:07:50 |
| 3 | Steinn Jóhannsson | Team Craft | 1968 | 00:21:25 | 01:08:54 | 00:38:16 | 02:08:35 |
| 4 | Vignir Þór Sverrisson | ÞríR/ÍR | 1975 | 00:27:01 | 01:07:21 | 00:41:13 | 02:15:36 |
| 5 | Gylfi Guðnason | ÞríR | 1965 | 00:24:10 | 01:10:41 | 00:41:00 | 02:15:51 |
| 6 | Hákon Hrafn Sigurðsson | HFR | 1973 | 00:27:36 | 01:15:31 | 00:39:01 | 02:22:09 |
| 7 | Viðar Bragi Þorsteinsson | Degaul | 1972 | 00:25:05 | 01:16:25 | 00:41:46 | 02:23:16 |
| 8 | Trausti Valdimarsson | ÞríR | 1956 | 00:27:19 | 01:13:44 | 00:42:25 | 02:23:29 |
| 9 | Baldur Már Helgason | Reykjavík | 1975 | 00:23:55 | 01:14:36 | 00:47:07 | 02:25:38 |
| 10 | Bergþór Jóhannsson | Bjartur | 1968 | 00:24:41 | 01:12:27 | 00:53:33 | 02:30:42 |
| 11 | Gunnar Stefánsson | Garðabær | 1980 | 00:31:16 | 01:15:14 | 00:46:52 | 02:33:23 |
| 12 | Ásgeir Elíasson | Bíddu aðeins/Þrír | 1962 | 00:25:36 | 01:21:00 | 00:46:59 | 02:33:36 |
| 13 | Darius Hubecki | Þrír | 1975 | 00:32:21 | 01:23:03 | 00:43:45 | 02:39:10 |
| 14 | Geir Ómarsson | Reykjavík | 1974 | 00:36:28 | 01:23:40 | 00:41:54 | 02:42:03 |
| 15 | Oddur Kristjánsson | Laugaskokk / | 1962 | 00:31:52 | 01:23:14 | 00:47:09 | 02:42:16 |
| 16 | Oddgeir Gylfason | Árbæjarskokk | 1959 | 00:28:43 | 01:22:27 | 00:51:28 | 02:42:39 |
| 17 | Pétur Helgason | Árbæjarskokk | 1956 | 00:34:17 | 01:23:42 | 00:45:32 | 02:43:32 |
| 18 | Hálfdán Freyr Örnólfsson | SH | 1972 | 00:24:23 | 01:25:13 | 00:56:03 | 02:45:41 |
| 19 | Gísli Héðinsson | Reykjavík | 1969 | 00:32:33 | 01:22:20 | 00:51:51 | 02:46:46 |
| 20 | Einar Finnur Valdimarsson | ÞríR | 1967 | 00:36:37 | 01:21:45 | 00:50:31 | 02:48:54 |
| 21 | Haukur J. Eiríksson | Hafnarfjörður | 1966 | 00:34:53 | 01:29:09 | 00:49:57 | 02:54:00 |
| 22 | Davíð Elvar Marinósson | Reykjavík | 1978 | 00:28:27 | 01:29:48 | 00:55:50 | 02:54:05 |
| 23 | Valgeir Pétursson | Garðabær | 1966 | 00:33:34 | 01:25:03 | 00:56:09 | 02:54:47 |
| 24 | Gísli Pálsson | Bjartur | 1967 | 00:39:57 | 01:23:37 | 01:03:32 | 03:07:06 |
| 25 | Agúst Bjarnason | Hollywood | 1977 | 00:36:03 | 01:54:49 | 01:00:58 | 03:31:52 |
| Röð | Nafn | Félag | Fæð.ár | Sund 1,5 | Hjól 40 | Hlaup 10 | Samtals |
| 1 | Hulda Björk Pálsdóttir | Þrir | 1963 | 00:26:59 | 01:21:44 | 00:45:39 | 02:34:23 |
| 2 | Eva Margrét Einarsdóttir | Asics liðið/ÍR | 1970 | 00:36:05 | 01:19:27 | 00:44:42 | 02:40:16 |
| 3 | Sigurbjörg Eðvarðsdóttir | ÍR | 1957 | 00:36:09 | 01:30:21 | 00:44:17 | 02:50:48 |
| 4 | Margrét Pálsdóttir | HFR | 1977 | 00:37:31 | 01:20:35 | 00:53:17 | 02:51:24 |
| 5 | Corinna Hoffmann | ÞríR | 1972 | 00:32:45 | 01:25:43 | 00:55:02 | 02:53:32 |
| 6 | Hrefna Sylvía Sigurgeirsdóttir | Bíddu aðeins | 1976 | 00:28:00 | 01:34:31 | 01:05:56 | 03:08:28 |
| 7 | Stefanie Gregersen | DISQUALIFIED | 1976 | 00:29:10 | 01:24:23 | 00:56:52 | 02:50:27 |
| Röð | Nafn | Félag | Fæð.ár | Sund 1,5 | Hjól 40 | Hlaup 10 | Samtals |
| 1 | Magni Þór Samsonarson Ólafur Baldursson Hugi Hreiðarsson |
Bjartur | 1968 | 00:24:57 | 01:12:33 | 00:46:45 | 02:24:15 |
Ólympísk þríþraut í Hafnarfirði 6. júní
Grunnupplýsingar:
Ólympísk þríþraut 2010 í Hafnarfirði hefst við Ásvallalaug á keppendafundi kl. 7:50 Kynntar verða leiðir og reglur en annars eru keppendur hvattir til að kynna sér þær á triathlon.is.
Vegalengdir eru 1500 metra sund í Ásvallalaug, 40 km á hjóli á Krísuvíkurvegi og 10 km hlaup í Vallahverfi.
Bæði skiptisvæði á sama stað (sunnanmegin) við laugina. Þetta er einstaklingakeppni en þriggja manna hópar geta einnig verið með og er þá einn áfangi fyrir hvern liðsmann.
Tímataka verður með kerfi Hlaup.com og er mældur nettó sundtími, hjólatími með báðum skiptingum og nettó hlaupatími.
Skráið ykkur hérna og leggið þátttökugjald sem er 2500 kr. á mann eða lið inn á þennan reikning: 303 26 44120 Kt. 441207-1070
Sendið tilkynningu um greiðslu á remisp50@hotmail.com. Greiðsla jafngildir staðfestingu á þátttöku. Liðin skrá sig í heild = 1 skráning og gefa upp “liðakeppni”. Ekki er tekið við greiðslum á keppnisstað og ekki er hægt að skrá sig á staðnum. Hámarksfjöldi keppenda er 48. Skráning lokar miðnætti miðvikudagin fyrir keppni eða þegar hámarksfjöldi er náð.
Athugið líka að keppnisnúmer verður ALLTAF að sjást á keppanda, að framan á hlaupi en að aftan á hjóli. Mælt er með númerabelti sem fæst í Afreksvörum. Liðin VERÐUR að vera með númerbelti eða teygju, því númerið færist á milli manna.
Kort af hjóla- og hlaupaleið verður birt á triathlon.is sem fyrst. Kynnið ykkur leiðirnar. Mælt er með brautarskoðun ef vill. Kynnið ykkur keppnisreglur á triathlon.is
Í svona keppni þarf alltaf starfsfólk og eru þeir sem vilja starfa eitthvað þennan morgun, beðnir að senda Corinnu póst. Corinna@ferill.is eða til Remi.
PS. Vinsamlegast gefið upp sundtíma í athugasemd.
PPS. Fyrirspurnir má senda til Remi eða Corinnu.
2. júní. Brautarskoðun. Þar sem margir keppendur í ÓL-þrautinni ætla í tímatökukeppnina á miðvikudagskvöldið, hafa sumir beðið um brautarskoðun í leiðinni og þótt tilvalið að hita upp með því að hjóla hlaupalegginn frekar rólega og kíkja síðan á upphaf hjólaleiðar. Hefur Secretary General boðist til að hitta lysthafendur við Ásvallalaug á slaginu 19.00 þetta kvöld og fara fyrir skoðunarferð. Allir velkomnir!
Skráning er hafin á hlaup.com. Notað verður tímatökuforrit bróður Stefáns sem hægt er að sækja sér og skoða á hlaup.com.
Líka er hægt að smella beint hérna á skráningarformið.
Listi yfir forskráða er hérna:
Hámarksfjöldi keppenda er 48. Skráningarfrestur er til 3. júní. Ekki er hægt að skrá sig á staðnum.
Hlaupið er út af skiptisvæði í austur eftir planinu í smálykkju og síðan inn á gangstéttina og farið á henni meðfram götunni upp í hverfið. Síðustu 400 metrar að snúningspunkti eru hlaupnir á götunni. Keilur verða á öllum helstu punktum og brautarvarsla við snúningspunkt og helst víðar. Einnig eru keilur við kílómetraskil. Best er að skokka leiðina einu sinni stresslaust til öryggis. Mælingamenn eru fúsir til fylgdar og félagsskapar. Gott er að sameina æfingu á Krísuvíkurvegi og brautarskoðun. Komaso!
P.S. Myndin stækkar ef smellt er á hana!
Keppnisreglur:
- Allir keppendur verða að mæta á keppnisfund kl. 7:50 á mótsdegi á skiptisvæði við Ásvallalaug.
- Á brautum í laug ber að synda í hring, þ.e. hægri umferð.
- Á hjóli verða keppendur að vera með númer að aftan og í hlaupi framan á sér. Eru keppendur hvattir til að verða sér út um númerabelti eða teygju sem festa má númer í.
- Stranglega bannað er að hjóla fyrir aftan næsta hjólreiðamann (Drafting). Keppenda ber að halda að minnsta kosti 7m fjarlægð frá næsta hjólreiðamanni fyrir aftan og 2m til hliðar. Þegar keppandi tekur framúr hefur hann 25 sek. (sjá nánar inn á hér eða inn á http://www.triduo.com/articlesPage/draftingrules/drafting.htm ) Brot á þessari reglu varðar 5 mínútna tímavíti.
- Keppendur verða að setja hjálm á höfuð og festa áður en hjól er snert.
- Keppendur verða að hengja hjól á hjólreiðarekka eftir að hjólalegg er lokið og síðan taka hjálm af. Öll aðstoð utanaðkomandi er bönnuð. Aðeins löggiltir starfsmenn geta veitt keppendum aðstoð.
- Keppendur verða að virða þá reglu að bannað er að hjóla á skiptisvæði.
- Keppendum ber að virða almennar umferðarreglur. Hægri umferð gildir alltaf.
- Í liðakeppni þurfa þátttakendur að nota sama númer, þ.e. hjólreiðamaður afhendir hlaupara númer eftir að hann er búinn að ganga frá hjólinu.
- Þátttakendur keppa á eigin ábyrgð.
- Brot á reglum geta varðað brottvísun úr keppni.
Úrslit í tímatöku
Neðangreindur skáletraður texti er fenginn að láni á hjolamenn.is
Karen Axelsdóttir og Gunnlaugur Jónasson sigruðu í kvenna- og karlaflokki í 20 km tímatökukeppni sem fram fór á Krýsuvíkurvegi í kvöld. Karen sigraði kvennaflokk með miklum yfirburðum en mjórra var á munum í karlaflokki en einungis skildu að 4 sekúndur milli Gunnlaugs og Péturs Þórs Ragnarssonar sem var í 2. sæti. Í þriðja sæti kom svo þríþrautakappinn Torben Gregersen. Í kvennaflokki hafnaði Ásdís Kristjánsdóttir í 2. sæti og María Ögn Guðmundsdóttir í 3. sæti.
Metþáttaka var í tímatökukeppninni í kvöld og er þetta fjölmennasta tímatökumót sem haldið hefur verið á Íslandi en alls voru þáttakendur 42, þar af 8 í kvennaflokki. Munaði þar mestu um góða þáttöku þríþrautafólks en sú íþróttagrein er greinilega í mikilli uppsveiflu um þessar mundir.
Sérstakar þakkir fær mótstjórn en hana skipuðu:
Haukur Eggertsson
Emil Þór Guðumndsson
Guðni Páll Daníelsson
Gunnar Carlson
Christina
| Sæti | Kvennaflokkur – 20km | Flokkur | Tími |
| 1 | Karen Axelsdóttir | K30 | 30:15 |
| 2 | Ásdís Kristjánsdóttir | K40 | 34:32 |
| 3 | María Ögn Guðmundsdóttir | K30 | 35:18 |
| 4 | Eva Margrét Einarsdóttir | K30 | 35:44 |
| 5 | Stefanie Gregersen | K30 | 35:48 |
| 6 | Margrét Pálsdóttir | K30 | 36:41 |
| 7 | Bryndís Þorsteinsdóttir | K17-18 | 37:53 |
| 8 | Corinna Hoffmann | K30 | 38:26 |
| Sæti | Karlaflokkur – 20km | Flokkur | Tími |
| 1 | Gunnlaugur Jónasson | H40 | 27:52 |
| 2 | Pétur Þór Ragnarsson | H30 | 27:56 |
| 3 | Torben Gregersen | H30 | 28:19 |
| 4 | Árni Már Jónsson | H30 | 28:29 |
| 5 | Hákon Hrafn Sigurðsson | H30 | 29:17 |
| 6 | Sigurgeir Agnarsson | H30 | 29:28 |
| 7 | Anton Örn Elfarsson | M | 29:46 |
| 8 | Ólafur Marteinsson | M | 30:06 |
| 9 | Hlöðver Sigurðsson | M | 30:10 |
| 10 | Rúnar Karl Elfarsson | M | 30:24 |
| 11 | Vignir Þór Sverrisson | H30 | 30:31 |
| 12 | Elfar Rúnarsson | H40 | 30:49 |
| 13 | Gísli Ólafsson | H40 | 30:57 |
| 14 | Miroslaw Adam Zyrek | H30 | 31:32 |
| 15 | Gylfi Guðnason | H40 | 31:37 |
| 16 | Bergþór Jóhannsson | H40 | 32:16 |
| 17 | Ármann Gylfason | H30 | 32:36 |
| 18 | Trausti Valdimarsson | H50 | 33:20 |
| 19 | Bertel Arnfinsson | H30 | 33:20 |
| 20 | Viktor Þór Sigurðsson | H40 | 33:28 |
| 21 | Erlendur Birgisson | H50 | 33:32 |
| 22 | Davíð Gunnarsson | H40 | 33:47 |
| 23 | Ólafur Baldursson | H40 | 34:06 |
| 24 | Benedikt Sigurðsson | H30 | 34:07 |
| 25 | Jens Viktor Kristjánsson | H30 | 34:12 |
| 26 | Örn Sigurðsson | H40 | 34:24 |
| 27 | Rúnar Pálmason | H30 | 35:16 |
| 28 | Oddur Kristjánsson | H40 | 35:31 |
| 29 | Kristinn Margeir Jóhannesson | H30 | 35:40 |
| 30 | Stígur Zoega | 15-16 | 36:00 |
| 31 | Oddgeir Gylfason | H50 | 36:05 |
| 32 | Örn Hrafnkelsson | H40 | 38:24 |
| Steinn Jóhannsson | H40 | Hætti | |
| Emil Tumi Víglundsson | 15-16 | Hætti |
Robbi Bjartsmaður tók þessar myndir af viðburðinum
Jesús í þríþraut
Samkvæmt beiðni set ég hér tengil á tæplega tveggja alda gamla frásögn um fyrstu þríþraut sem vitað er um.





Ummæli