Hálf ólympísk þríþraut 25. júlí



Þríþrautardeild SH, ÍBH og Garpar, jafnvel í samstarfi við Bjart og ÞRÍH, bjóða upp á hálfa ÓL-þraut í Hafnarfirði 25. júlí og hefst hún stundvíslega kl. 09:30. Synt í Ásvallalaug og hjólað á Krísuvíkurvegi eins og í ÓL-þrautinni og hlaupið á sömu leið og í hálfkarlinum, nema snúið er við áður en komið er að hringtorginu.

Myndin sýnir hvernig hjólað er frá lauginni og út á Krísuvíkurveg og þar er farið alla  leið að skiltinu fyrir framan grjótnámurnar, þar sem malbikið endar efst uppfrá og síðan er farið niðureftir sömu leið og inn að laug.

Hlaupið er eftir gangstéttum í Vallahverfi sem leið liggur og að endakeilu þar sem brautarvörður stendur og sömu leið til baka. Á myndinni er græni punkturinn við hringtorgið en snúið er við hjá ljósastaur um 50 metrum frá torginu.

Skráning er á hlaup.com og nánari upplýsingar um greiðsluform þar.

  1. No comments yet.
(will not be published)