Hjólameistarinn – Nýtt reiðhjólaverkstæði opnað



Hjólameistarinn er nýtt reiðhjólaverkstæði. Eigandi þess og helsti starfsmaður er Rúnar Theodórsson, áður kenndur við Markið. Rúnar hefur þjónustað þríþrautafólk undanfarin ár og er án efa einn mesti sérfræðingur landsins í hjólaviðgerðum og hjólastillingum.
Hjólameistarinn býður uppá alhliða viðgerðarþjónustu auk sérhæfðra viðgerða.  Rúnar hefur undanfarin ár boðið upp á stillingar á hjólum og auk þess hefur hann pakkað hjólum fyrir þríþrautafólk sem er að fara í keppnir erlendis. Í Hjólameistaranum verður einnig til sölu ýmis búnaður á hjól, bæði varahlutir annað sem tengist hjólum. 
Er þríþrautafólk hvatt til að nýta sér sérfræðiþekkingu og áratugareynslu Rúnars af hjólum og öðru þeim tengdum.

Hjólameistarinn er opinn frá 9 – 18 mánudaga til föstudaga.Verkstæðið er staðsett að Nýbýlavegi 28, rétt við Amarican Style og er síminn 892-1411.

  1. No comments yet.
(will not be published)