Um

Þessi síða er á vegum Þríþrautasambands Íslands. Ritstjórar eru Gísli Ásgeirsson, Vallarbyggð 7, Hafnarfirði og Helgi Hinriksson, Hafnarfirði. Þríþrautasamband Íslands er samband þríþrautafélaga á Íslandi.
Ábyrgðarmaður síðunnar og þess efnis sem á henni birtist er Gísli Ásgeirsson, kt. 280555-4879.

Vefsmiður er Helgi Hinriksson.
Hægt er að senda okkur efni á netfangið gisli(hja)internet.is.

Nokkrar skilgreiningar

Þríþraut er þriggja greina keppni og tekur hver við af annarri.
Hérlendis er keppt í eftirtöldum afbrigðum:
Sprettþraut: 400 metrar sund, 10 km hjól, 2,5 km hlaup. Oftast fyrsta keppni ársins og haldin í Kópavogi við Kópavogslaugina.
Hálfólympísk þraut: 750 metrar sund, 20 km hjól, 5 km hlaup. Hefur farið fram við Seltjarnarnesslaugina í júníbyrjun. Vasaþrautin á Ísafirði er í byrjun september og synt er í lauginni í Bolungavík.
Ólympísk þríþraut: Í henni er keppt á Ólympíuleikum. 1500 metrar sund, 40 km hjól, 10 km hlaup. Hefur verið haldin á Laugum í Reykjadal undanfarin ár, með því fráviki að hvílt er milli sunds og hjóls.
Hálfur járnkarl: 1900 metrar sund, 90 km hjól, 21,1 hlaup.
Haldinn í Hafnarfirði í júlí undanfarin tvö ár.
Heill járnkarl (Ironman): 3,8 km sund, 180 km hjól, 42.2 km hlaup. Þykir erfiðasta fjölþrautakeppni heims og nýtur nú mikilla vinsælda.