Æfingaáætlun 1/2 Járnkarl
Fara á umræðuþráð greinar
Hér er æfingaáætlun fyrir ½ Járnkarl sem haldin verðu í Hafnarfirði 11 júlí 2010. Þessi áætlun er samansett úr 20 og 18 vikna áætlunum sem fundust á internetinu. Áætlunin er aðlöguð eða sniðin til að aðlagast Garpaæfingum sem eru á þriðjudögum og fimmtudögum sem og lengri hjólaæfingum sem eru á sunnudögum. Mánudaga og Miðvikudaga eru skráðar lyftingar í hádeginu, það er í raun óþarfi að taka báða daganna en í góðu lagi að halda þeim báðum inni. Hugsanlega fækka/minnka lyftingar þegar líða fer á áætlunina.
Frídagurinn er skráður á föstudegi en hann má taka á mánudegi (víxla dögum) eða eins og mönnum hentar.
Ef sá/sú sem kemur til með að nýta sér þessa áætlun er vanur/vön að hjóla til vinnu (10km +) þá er vel óhætt að halda því áfram þá daga sem ekki er hjól samkvæmt áætlun, taka sér bara lengri tíma til að koma sér til vinnu og passa að halda púlsinum niðri.
Ef upp koma spurninga þá kíkið á spjallþráð síðunnar.
Gangi ykkur vel
Helgi Hinriks

Ummæli