Hjólaæfingarbúðir 3þrautargarpa 28.-30. maí!
Þríþrautarsamband Íslands skipuleggur æfingarbúðir ofangreinda helgi. Jens Viktor Kristjánsson, formaður ÞRÍR, setur upp æfingar fyrir helgina.
Við hittumst við Ásvallalaugina í Hafnafirði föstud 28. maí kl. 17:30. Æfing: Hjólað saman í upphitun og svo nokkrir litlir hringir með hraðabreytingum. Pottaseta eftir hjól.
Laugard 29. maí verða teknar þéttar hjólaæfingar á Krísuvíkurveginum frá kl. 09:00-11:00 og hlaupið (“brick”) beint á eftir. Áhersla á eigin stellingu á hjólinu, cadence, gíra, o.fl. Finna hentungar stillingar í mismunandi aðstæðum, t.d. upp og niður brekkur með tilliti til gíra.
Eftir heita pottinn verður snædd eðalmáltíð framreidd af kokki sundmanna Hafnfirðinga og spjallað að vild. Sund að vild.
Seinni partinn kl. 16:00 verður tekinn tímatökuæfing á Krísuvíkurveginum þar sem hjóluð verður stutt vegalengd á fullum hraða.
Sunnud. 30. maí verður hjólað langt, þ.e. 2,5-3 klst. og byrjar æfingin kl. 08:00 frá Ásvallalaug verður hjólað um höfuðborgarsvæðið.
Hafsteinn Ægir Geirsson (Haffi Íslandmeistari) mun slást í hópinn. Eftir æfinguna kl ca 11:00 mun Haffi fræða okkur um hvernig á að hjóla hraðar! Hvað skiptir máli varðandi hjólið, setuna á því o.s.frv.
Allt þríþrauta- og hjólreiðafólk velkomið.
Þeir sem ætla að koma eru beðnir um að skrá sig hér fyrir neðan. Kostnaður er kr. 2000 og er matur og drykkir innifalið (greitt á staðnum). Greiða þarf sérstaklega fyrir að fara í laugina.
Viðbót: 19. maí. Nú þegar eru 26 skráðir og stefnir í frábæra þátttöku. Komaso!
Skráningu í þennan viðburð er lokið.

Ummæli