Intersport hálfi járnkallinn 2010
Almenn atriði fyrir keppendur:
- Keppni hefst stundvíslega kl 8:30 sunnudagsmorguninn 11. Júlí og því eru keppendur beðnir vinsamlegast um að mæta tímanlega eða í seinasta lagi 7:30.
- Boðið verður upp á brautarskoðun laugardaginn 10. júlí kl. 10:00 við Ásvallalaug, keppendur eru hvattir til að nýta sér þá skoðunarferð. Þeir sem ætla að nýta sér skoðunarferðina eru beðnir um að koma með hjól þar sem hjóla- og hlaupaleið verður farin á hjóli, þetta er ekki löng hjólaferð, er ca. 10 km og það verður farið rólega.
- Synt er í Ásvallalaug sem er 50 metra löng og verður keppendum raðað á brautir eftir uppgefnum sundtímum. Því er mikilvægt að keppendur gefi upp sundtíma við skráningu, hægt að senda þær upplýsingar til Róberts (robert.petursson@gmail.com. Teljarar verða við sundbrautir.
- Að loknu sundi fara keppendur út um hliðardyr þar sem skptisvæði er, þar hafa keppendur komið hjóli sýnu fyrir ásamt skóm og öðrum fatnaði. Skiptisvæði verður afmarkað og þar verður gæsla á meðan sundi stendur.
- Hjólað er frá lauginni eftir göngustíg að hringtorgi við Bónus og þar verður farið inn á akveginn. Þaðan er hjólað eftir merkingum að hringtorgi við Krísuvíkurveg. Hér má segja að formleg hjólaleið sé byrjuð. Hjólaðir verða sex hringir, gæsla verður við hringtorgið og einnig við snúnigskeilu upp á Krísuvíkurvegi. Þegar keppendur koma eftir sex hringi er hjóluð sama leið til baka að Ásvallalaug þar sem skiptisvæðið er.
- Hlaupið er á gangstígum í Vallahverfi og verða farnir fjórir hringir. Hlaupaleið verður merkt með keilum og merkingum á göngustíg. Gæsla er við snúningskeilu.
- Drykkjarstöð er á skiptisvæði þar sem keppendur geta fengið drykk eða banana í hverjum hlaupahring, drykkjarstöð fyrir hjólalegg verður við hringtorgið á Krísuvíkurvegi. Keppendur geta afhent sérdrykki sem verður stillt upp á borð við hverja drykkjarstöð. Eftir keppni verður nóg að borða og drekka.
Keppnisreglur:
- Allir keppendur verða að mæta á keppnisfund kl. 7:50 á móstsdegi, fundur fer fram á skiptisvæði við Ásvallalaug.
- Öll hjóla keppenda verða skoðuð fyrir keppni, þar sem öryggisbúnaður hjóls verður skoðaður (bremsur). Eftir að keppnisfundur er afstaðin verða hjól ekki skoðuð og eru því keppendur hvattir til að mæta tímanlega til að öll hjól verði skoðuð fyrir fund. Ef hjól er ekki skoðað jafngildir það brotvísun úr keppni.
- Í sundlegg keppninar verður synt í hringi, þ.e. hægri umferð.
- Blautbúningar leyfðir.
- Þegar keppendur eru á hjóli verða keppendur að hafa númer að aftan en í hlaupalegg verður númer að vera að framan. Keppendur eru hvattir til að verða sér útum númerabelti eða tegju svo hægt sé að festa númer í.
- Stranglega bannað að hjóla fyrir aftan næsta mann (drafting). Bil milli hjólreiðamann verður að vera hið minnsta 7 metra og 2 metra til hliðar. Keppendur eru beðnir um að halda sér hægra megin á götunni til að auðvelda öðrum keppendum að taka framúr. Sjá nánari útskýringar á þessari reglu hér(http://www.triduo.com/articlesPage/draftingrules/drafting.htm), brot á reglunni varðar 4 mínútna tímavíti.
- Keppendur verða að setja hjálm á höfuð og festa áður en hjól er snert.
- Keppendur verða að hengja hjól á hjólarekka eftir að hjólalegg er lokið og síðan taka hjálm af. Öl aðstoð utanaðkomandi er bönnuð. Aðeins löggiltir starfsmenn geta veitt keppendum aðstoð.
- Bannað er að hjóla á skiptisvæði
- Keppendum ber að virða almenna umferðareglur. Hægri umferð gildir alltaf.
- Í liðakeppni þurfa keppendur að nota sama númer, þ.e. hjólreiðamaður afhendir hlaupara númer eftir að hann er búinn að ganga frá hjólinu.
- Hjálmaskylda í hjólalegg keppninar.
- Þátttakendur keppa á eigin ábyrgð.
- Brot á reglum geta varðað tímavíti eða brottvísun úr keppni.
Myndir af hjóla- og hlaupaleið:
Hjólaleið:
Myndir (1 og 2) sýna hjólaleið. Mynd 1 sýnir þá leið sem farin er frá skiptisvæði að Krísuvíkurvegi og mynd 2 sýnir hjólaleið á Krísuvíkurvegi. Vegalengd frá Ásvallalaug að hringtorgi við Krísuvíkurveg er 1,6 km og frá hringtorginu að snúningskeilu er 7,23 km. Hjólaðir eru 6 hringir. Guli hringurinn á fyrri myndinni sýnir hvar drykkjarstöðin er og guli hringurinn á seinni myndinni sýnir hvar snúningskeila verður staðsett. Einnig er drykkjarstöð á skiptisvæði við Ásvallalaug.
Mynd 1: Fyrri helmingur hjólaleiðar.
Mynd 2: Seinni helmingur hjólaleiðar.
Hlaupaleið:
Mynd 3 sýnir hlaupaleið. Lagt er af stað frá skiptisvæði sem staðsett er við Ásvallalaug. Hlaupið er á götum og göngustígum um Vallahverfið. Göngustígar verða merktir með keilum og einnig á göngustígunum sjálfum. Guli punkturinn sýnir hvar drykkjarstöð er staðsett sem er á skiptisvæði við Ásvallalaug, en græni punkturinn sýnir hvar snúningskeila er staðsett. Hver hringur er 5,28 km og því er vegalengd að snúningskeilu 2,64 km. Farnir verða 4 hringir.
Mynd 3: Hlaupaleið.
- No comments yet.




Ummæli