Greinargerð og úrskurður
Formáli:
Í ÓL-þrautinni 6. júní var keppandi dæmdur úr leik á hlaupalegg vegna styttingar
Um þetta mál var upphaflega fjallað á vefsíðu Evu M. Einarsdóttur, og síðar á bloggsíðu undirritaðs. Í kjölfar þess var mér, 25. júlí, send ljósmynd af keppanda í Hálfkarlinum 11. júlí sl. þar sem fram kemur að keppandinn hafi verið með Ipod á hlaupalegg, sem er i trássi við bandarísku þríþrautarreglurnar, sjá nánar í úrskurði. Sendandi vildi ekki senda þetta meinta brot inn sem ábendingu/fyrirspurn/kæru til keppnisstjórnar, heldur var spenntur að sjá hvað ég myndi gera við myndina. Ég sendi tafarlaust beiðni til keppnisstjóra um úrskurð í málinu og liggur sá nú fyrir:
“Hafnarfirði 25. júlí, 2010
Frá: Róbert Pétursson, keppnisstjóri Hálfkarlsins í Hafnarfirði, 11. júlí, 2010
Til: Keppnishaldarar, ÞRÍH
Efni: Ábending um brot á keppnisreglum. Úrskurður.
Keppnisstjóri fékk þann 25. júlí, ábendingu um meint brot á keppnisreglum sem átti sér stað í Hálfkarlinum, (Half Ironman Distance) 11. júlí, 2010. Skv. meðfylgjandi ljósmynd hefur keppandi í kvennaflokki nr. 778 heyrnartól(ipod) en það er óheimilt samkvæmt 3.4(i) í reglum bandaríska þríþrautarsambandsins, væntanlega með öryggi keppenda í huga í fjölmennri keppni.
Almennar keppnisreglur höfðu fyrir keppnina verið birtar á triathlon.is og við þær var stuðst. Vegna fyrirspurnar nokkurra keppenda heimilaði keppnisstjóri notkun Ipod, einkum vegna fjölda keppenda og lengdar leiðar, enda er Ipod-notkun leyfð t.d. í þýsku reglunum.
Keppnisstjóri vill taka fram að almennt er miðað við að allar breytingar á úrslitum komi fram eigi síðar en tíu dögum eftir að keppni lýkur. Viðkomandi ábending kemur 14 dögum eftir keppni. Heimilt er að áfrýja úrskurði keppnisstjóra til sérstakrar kærunefndar.
Róbert Pétursson
keppnisstjóri”
Vegna þess sem ýjað er að í formála er þessi úrskurður ásamt greinargerð birtur hér. Öllum er frjáls að tjá sig um hann, enda er athugasemdakerfi opið.
Virðingarfyllst
Gísli Ásgeirsson
gisli (hja)internet.is
Hálf ólympísk þraut í Hafnarfirði
Það viðraði ágætlega í morgun þegar 16 keppendur voru ræstir í Ásvallalaug og svömluðu þar sína 750 metra, hver með sínum stíl. Fyrstur upp úr lauginni var Ólafur Marteinsson og síðan kom Jón Hugi, Kristín Laufey, Helgi Hinriks og María Ögn, sem stytti sumarfríið sitt til að ná einni þraut fyrir haustið. Allir skiluðu sér upp úr og þá tók við hjólaleggurinn þar sem nokkur vindur var í fangið upp Krísuvíkurveginn en meðvindur niðureftir sem skilaði keppendum háum tölum á hraðamæli og eins gott að lögreglan var ekki til svæðis.
Forskot Óla var orðið að tæpum sjö mínútum þegar hjólinu lauk en þar fór Helgi mikinn og kom annar inn. 2 mínútum síðar kom Trausti og reyndi ákaflega að ná Helga, náði besta hlaupatíma dagsins við það, en Helgi hélt öðru sætinu. Fjórði var Gunnar Stefáns, sem að eigin sögn á mikið inni á sundinu en átti mjög góðan dag á hjóli og hlaupum. Fimmta í mark var svo María Ögn, sigurvegari í kvennaflokki.
Öll úrslit er að finna á hlaup.com, ásamt millitímum og þar má margan fróðleiksmolann finna. Keppnin þótti annars takast vel og settu börn keppenda skemmtilegan svip á áhorfendasvæðið þar sem þau biðu spennt og fengu auðvitað Prins póló og banana að smjatta. Vífilfell sá um drykkina með milligöngu herra Formannsins og Ásbjörn Ólafsson gaf Prins póló með milligöngu Þórólfs. Þar að auki lagði ÍBH til keppnisstjóra og sundlaug og SH-félagar sáu um talningu. Gott er að eiga góða að, enda yrði engin keppni ef ekki fengist starfsfólk.
HEILDARÚRSLIT Hálf Ólympísk
| Röð | Nafn | Fæð.ár | 750 M | 20 km | 5 km | Samtals |
| 1 | Ólafur Marteinsson | 1988 | 00:10:43 | 00:32:54 | 00:20:31 | 01:04:09 |
| 2 | Helgi Hinriksson | 1972 | 00:13:39 | 00:36:12 | 00:21:07 | 01:10:58 |
| 3 | Trausti Valdimarsson | 1957 | 00:14:47 | 00:37:13 | 00:19:59 | 01:12:00 |
| 4 | Gunnar Stefánsson | 1980 | 00:17:00 | 00:37:18 | 00:21:21 | 01:15:39 |
| 5 | Jón Hugi Harðarson | 1963 | 00:12:10 | 00:43:32 | 00:21:57 | 01:17:41 |
| 6 | María Ögn | 1980 | 00:14:28 | 00:41:08 | 00:22:25 | 01:18:02 |
| 7 | Hartmann Bragason | 1953 | 00:16:39 | 00:40:44 | 00:23:52 | 01:21:17 |
| 8 | Margrét Pálsdóttir | 1978 | 00:18:22 | 00:38:50 | 00:24:48 | 01:22:01 |
| 9 | Valgeir Pétursson | 1967 | 00:18:00 | 00:41:00 | 00:23:08 | 01:22:09 |
| 10 | Ásmundur Helgi Steindórsson | 1976 | 00:15:20 | 00:43:29 | 00:23:44 | 01:22:34 |
| 11 | Kristín Laufey Steinadóttir | 1979 | 00:13:16 | 00:45:19 | 00:24:18 | 01:22:55 |
| 12 | Corinna Hoffmann | 1973 | 00:17:15 | 00:42:57 | 00:24:39 | 01:24:52 |
| 13 | Sigurður Örn Eiríksson | 1970 | 00:19:56 | 00:42:26 | 00:22:55 | 01:25:18 |
| 14 | Stefanie Gregersen | 1976 | 00:16:31 | 00:40:40 | 00:30:37 | 01:27:48 |
| 15 | Jón Sigþór Jónsson | 1973 | 00:19:34 | 00:44:09 | 00:26:43 | 01:30:27 |
| 16 | Stefán Reynisson | 1979 | 00:20:53 | 00:45:25 | 00:24:40 | 01:30:59 |
| Flokkaúrslit Karlar | ||||||
| Röð | Nafn | Fæð.ár | 750 M | 20 km | 5 km | Samtals |
| 1 | Ólafur Marteinsson | 1988 | 00:10:43 | 00:32:54 | 00:20:31 | 01:04:09 |
| 2 | Helgi Hinriksson | 1972 | 00:13:39 | 00:36:12 | 00:21:07 | 01:10:58 |
| 3 | Trausti Valdimarsson | 1957 | 00:14:47 | 00:37:13 | 00:19:59 | 01:12:00 |
| 4 | Gunnar Stefánsson | 1980 | 00:17:00 | 00:37:18 | 00:21:21 | 01:15:39 |
| 5 | Jón Hugi Harðarson | 1963 | 00:12:10 | 00:43:32 | 00:21:57 | 01:17:41 |
| 6 | Hartmann Bragason | 1953 | 00:16:39 | 00:40:44 | 00:23:52 | 01:21:17 |
| 7 | Valgeir Pétursson | 1967 | 00:18:00 | 00:41:00 | 00:23:08 | 01:22:09 |
| 8 | Ásmundur Helgi Steindórsson | 1976 | 00:15:20 | 00:43:29 | 00:23:44 | 01:22:34 |
| 9 | Sigurður Örn Eiríksson | 1970 | 00:19:56 | 00:42:26 | 00:22:55 | 01:25:18 |
| 10 | Jón Sigþór Jónsson | 1973 | 00:19:34 | 00:44:09 | 00:26:43 | 01:30:27 |
| 11 | Stefán Reynisson | 1979 | 00:20:53 | 00:45:25 | 00:24:40 | 01:30:59 |
| Flokkaúrslit konur | ||||||
| Röð | Nafn | Fæð.ár | 750 M | 20 km | 5 km | Samtals |
| 1 | María Ögn | 1980 | 00:14:28 | 00:41:08 | 00:22:25 | 01:18:02 |
| 2 | Margrét Pálsdóttir | 1978 | 00:18:22 | 00:38:50 | 00:24:48 | 01:22:01 |
| 3 | Kristín Laufey Steinadóttir | 1979 | 00:13:16 | 00:45:19 | 00:24:18 | 01:22:55 |
| 4 | Corinna Hoffmann | 1973 | 00:17:15 | 00:42:57 | 00:24:39 | 01:24:52 |
| 5 | Stefanie Gregersen | 1976 | 00:16:31 | 00:40:40 | 00:30:37 | 01:27:48 |
Hjólameistarinn – Nýtt reiðhjólaverkstæði opnað
Hjólameistarinn er nýtt reiðhjólaverkstæði. Eigandi þess og helsti starfsmaður er Rúnar Theodórsson, áður kenndur við Markið. Rúnar hefur þjónustað þríþrautafólk undanfarin ár og er án efa einn mesti sérfræðingur landsins í hjólaviðgerðum og hjólastillingum.
Hjólameistarinn býður uppá alhliða viðgerðarþjónustu auk sérhæfðra viðgerða. Rúnar hefur undanfarin ár boðið upp á stillingar á hjólum og auk þess hefur hann pakkað hjólum fyrir þríþrautafólk sem er að fara í keppnir erlendis. Í Hjólameistaranum verður einnig til sölu ýmis búnaður á hjól, bæði varahlutir annað sem tengist hjólum.
Er þríþrautafólk hvatt til að nýta sér sérfræðiþekkingu og áratugareynslu Rúnars af hjólum og öðru þeim tengdum.
Hjólameistarinn er opinn frá 9 – 18 mánudaga til föstudaga.Verkstæðið er staðsett að Nýbýlavegi 28, rétt við Amarican Style og er síminn 892-1411.
Góður árangur hjá Ragnari Guðmundssyni í ólympískri þraut
Þann 18. júlí sl. keppti Ragnar Guðmundsson fyrrum sundmaður og Íslandsmethafi í 1500m skriðsundi í ólympískri þríþraut í Hamborg. Þrautin er haldin af alþjóðaþríþrautasambandinu og er hluti af heimsmótaröðinni í ólympískri þríþraut. Í Hamborg kepptu margir af bestu þríþrautamönnum heims úr hópi atvinnumanna. Í hópi áhugamanna varð Ragnar nr. 14 af 2860 keppendum og nr. 3 í aldurshópnum 40-44 ára. Er þetta frábær árangur og verður spennandi að fylgjast með Ragnari í framtíðinni.
Árangur hans varð annars eftirfarandi eftir greinum og T1 og T2:
Sund: 20:10 mín
T1: 4:02
Hjól: 1:05,35 klst
T2: 2:41
Hlaup: 36,29 mín.
Nánari upplýsingar og úrslit er hægt að skoða inn á http://www.hamburg-triathlon.org/
ÞríR Femmes rokkar
Það var kvennalið Þríþrautarfélags Reykjavíkur „ÞríR Femmes“ sem vann liðakeppni kvenna í Bláalónsþraut 2010 – 60km fjallahjól. Réttu úrslitin komu því miður ekki í ljós á keppnisdeginum en engu að síður vorum við fljótastar á tímanum 8:11:30. Fengum við gullpenninga og gjafabréf á Lava-restaurant í Bláa lóninu. Við gerðum okkur ferð suðureftir í gær og gæddum okkur á gómsætum mat og skáluðum fyrir sigrinum. Það var ofsalega skemmtilegt og við stelpurnar kynntumst betur. Þökkum HFR fyrir gott framtak!
Og þetta er liðið (frá vi): Corinna Hoffmann, Inga Dagmar Karlsdóttir, Hulda Björk Pálsdóttir, Hérdís M. Guðjónsdóttir, Rúna Rut Ragnarsdóttir.
Hálf ólympísk þríþraut 25. júlí
Þríþrautardeild SH, ÍBH og Garpar, jafnvel í samstarfi við Bjart og ÞRÍH, bjóða upp á hálfa ÓL-þraut í Hafnarfirði 25. júlí og hefst hún stundvíslega kl. 09:30. Synt í Ásvallalaug og hjólað á Krísuvíkurvegi eins og í ÓL-þrautinni og hlaupið á sömu leið og í hálfkarlinum, nema snúið er við áður en komið er að hringtorginu.

Myndin sýnir hvernig hjólað er frá lauginni og út á Krísuvíkurveg og þar er farið alla leið að skiltinu fyrir framan grjótnámurnar, þar sem malbikið endar efst uppfrá og síðan er farið niðureftir sömu leið og inn að laug.

Hlaupið er eftir gangstéttum í Vallahverfi sem leið liggur og að endakeilu þar sem brautarvörður stendur og sömu leið til baka. Á myndinni er græni punkturinn við hringtorgið en snúið er við hjá ljósastaur um 50 metrum frá torginu.
Skráning er á hlaup.com og nánari upplýsingar um greiðsluform þar.
Intersport-Hálfkarlinn 2010
Það gekk á með sól og logni þegar keppendur í hálfkarlinum stilltu upp hjólum sínum og hituðu upp fyrir sundlegginn. 33 keppendur lögðu af stað, 31 stakir og 2 lið. Fyrsti maður synti á 24 mínútum, enda fulltrúi liðs en Steinn og Torben, sem reiknað var með að berðust um sigurinn, voru báðir vel undir hálftímanum. Síðan voru hjólfákar beislaðir og lagt af stað.
Allar aðstæður voru eins og best verður á kosið og árangurinn var líka í samræmi við það. Torben og Hákon Hrafn voru í sérflokki á hjólaleggnum, báðir á 2 tímum, 21 mínútu, Steinn hjólaði á 2.31 en Helgi Hinriksson, fulltrúi Bjartsmanna, kom ekki á óvart með fjórða besta hjólatímanum, enda búinn að æfa eins og MF. Flestir bættu hjólatíma sinn annars mikið, enda bauð veðrið upp á það.
Á hlaupinu ráðast úrslitin. Þar át Steinn upp forskot Torbens og Hákonar og kom í mark á nýju Íslandsmeti, 4 tímum, 23 mínútum og 13 sekúndum. Torben fór einnig undir gamla metið og Hákon bætti sig um 45 mínútur, kom í mark á 4:34. Á eftir þeim kom svo Vignir Sverrisson, sem átti annan besta hlaupatíma dagsins, 1.31, og félagi hans, Gylfi, var skammt á eftir. Þetta er merkilegur árangur í ljósi þess að æfingar þeirra fyrir járnkarlinn í Kaupinhafn hafa verið miklar undanfarna mánuði og hvíldu þeir ekki fyrir þessa keppni.
Helga Árnadóttir kom að norðan, vígði nýja keppnishjólið sitt og hljóp svo eins og vindurinn eftir það. Hún stórbætti íslandsmetið, fór á 5 tímum og 20 mínútum og munaði þar mest um gott hálfmaraþon, þar sem hún náði níunda besta tímanum í heildina. Hulda Björk Pálsdóttir fór einnig undir gamla metið á 5:27 og Margrét Pálsdóttir sýndi mikla keppnishörku þegar hún tryggði sér þriðja sætið.
Það er gaman að skoða millitíma og árangur keppenda. Margir bættu sig ákaflega mikið og Kaupinhafnarfarar fengu dýrmætt innlegg í reynslubankann. Spennandi verður að fylgjast með árangri þeirra þar. Það þarf heldur ekki að gúgla mikið til að sjá að árangur Íslandsmeistaranna, Steins og Helgu, myndi skila þeim langt á alþjóðlegum mótum.
Allt skipulag keppninnar var með miklum ágætum og verður starfsfólkinu seint fullþakkað fyrir sitt framlag. Án þess væri svona keppni ekki haldin og ómetanlegt að eiga gott fólk að. Það átti stóran þátt í stemmningu dagsins með hvatningum til keppenda og góðu skapi.
ÞRÍ, ÍBH og Sundfélag Hafnarfjarðar hélt keppnina og var Róbert Pétursson mótsstjóri. Hann fær ekki mikla hvíld því eftir tvær vikur verður boðið upp á hálfa ólympíska þraut í Ásvallalaug og á Krísuvíkurvegi. Þar verður án efa góð mæting.
Skoðið myndasýninguna hér til hægri á síðunni.
Viðbót:
Stóra fjölmiðlamálið saga í þremur köflum um eina mínútu
Intersport hálfi járnkarlinn í Hafnarfirði
Sunnudaginn 11. júlí fer fram aðal þríþrautakeppni sumarsins, Intersport hálfi járnkarlinn í Hafnarfirði. Að keppninni standa Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) og Sundfélag Hafnarfjarðar, þríþrautadeild með aðkomu Þríþrautasambands Íslands.
32 keppendur eru skráðir til leiks í einstaklingskeppni og 2 lið í liðakeppninni. Nokkrir erlendir þátttakendur keppa að þessu sinni.
Búast má við hörkukeppni í karla- og kvennaflokki og ef veður verður gott má jafnvel búast við að Íslandsmet munu falla.
Vegalengdir eru: 1,9 km sund, 90 km hjól, 21.1 km hlaup.
Synt verður í Ásvallalaug, hjólað á Krísuvíkurvegi og hlaupið um Vallahverfið. Skiptisvæði er við Ásvallalaug og þar er einnig drykkjar- og þjónustustöð, salerni, gæsla fyrir hjól og dót. Einnig verður drykkjarstöð við hringtorg á Krísuvíkurvegi og við snúningspunk á hlaupaleið.
Okkar fólk á EM í Athlone á Írlandi

Karen Axelsdóttir og Ólafur Marteinsson héldu upp á aðild Íslands að ETU með því að keppa undir merkjum þjóðar vorrar á EM í þríþraut í Athlone um liðna helgi. Rétt er að geta þess að nær öll formsatriði eru að baki og með fulltingi ÍSÍ erum við þríþrautarfólk á klakanum komin í samfélag þjóðanna. Við í grasrótinni verðum að fylgja þessu eftir með því að ganga í þríþrautardeildir á okkar svæðum og breiða út fagnaðarerindið með öllum ráðum. Meðbyrinn er ærinn og gaman að finna áhugann.
Í tilefni af þessum áfanga fór okkar fólk auðvitað mikinn á mótinu í Athlone þrátt fyrir ferleg veðurskilyrði eins og Karen nefnir í pistli sínum á Mbl.is. Þar er góð lýsing á aðstæðum og gengi þeirra og nokkuð ljóst að við betri skilyrði hefði árangurinn orðinn enn betri. Karen varð í öðru sæti í sínum aldursflokki og fjórða af öllum konum, en Ólafur varð nr. 13 í sínum flokki og nr. 71 af öllum körlum. Það er óhætt að segja að Íslendingar hafi stimplað sig rækilega inn á sínu fyrsta formlega Evrópumóti og nauðsynlegt að fylgja þessu eftir með þátttöku að ári.
Þrír Vest fylgdist með keppninni á netsíðu mótsins og birti frábæra samantekt um millitíma á leiðinni hjá þeim báðum. Áhugafólk um meðalhraða er bent á að kynna sér málið.
Aðalritarinn í útvarpsviðtali
Í morgun vaknaði Gísli Ásgeirsson snemma og hitti þá félaga Frey og Guðmund í Morgun útvarpinu á Rás 2.
Hálfur járnkarl í Hafnarfirði á sunnudaginn.
Næstkomandi sunnudag verður keppt í hálfu járnkarli í Hafnarfirði. Keppendur munu synda tæpa 2 kílómetra, hjóla 90 kílómetra og hlaupa 21.1 kílómetra. Gísli Ásgeirsson kom í Morgunútvarpið og sagði frá keppninni, en þessi erfiðu íþróttagrein nýtur mikilla vinsælda hér á landi um þessar mundir. Gísli sagði svona keppni eingöngu fyrir þá sem eru í góðu formi.

Ummæli