Guðlaug Edda í 20. sæti á Evrópumeistaramótinu í Glasgow

Guðlaug Edda í 20. sæti á Evrópumeistaramótinu í Glasgow

9 August 2018 20:00

Guðlaug Edda Hannesdóttir keppti í dag á Evrópumeistaramótinu í þríþraut sem fram fór í Glasgow. Keppt var í ólympískri vegalengd sem samanstendur af 1500 m sundi, 40 km hjólreiðum og 10 km hlaupi og mættar voru til leiks 45 af sterkustu þríþrautarkonum Evrópu. Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingar eiga fulltrúa í Elite flokki á svo sterku þríþrautarmóti.

Guðlaug Edda byrjaði keppnina vel og átti gríðarsterkt sund, synti fyrri hring 9:28 og seinni á 9:20 og var 10. kona eftir sundið. Skipting yfir á hjól gekk einnig vel, og allur hjólahlutinn gekk frábærlega en Guðlaug Edda hélt sinni stöðu allan tímann. Þar hjólaði hún í stórum og sterkum hóp sem elti þrjár fremstu konur. Guðlaug Edda kom 14. inn á skiptisvæðið áður en skipt var í hlaupið en það voru um 20 konur að koma inn á sama tíma. Í hlaupinu dreifðist meira úr keppendum og var Guðlaug Edda í 19. sæti eftir fyrsta hring af þremur en hún hljóp þar meðal annars með Evrópumeistaranum frá 2016, India Lee. Hún tók framúr Lee á endasprettinum og endaði í 20. sæti á tímanum 2:05:19, sannarlega frábær árangur hjá Guðlaugu Eddu á svo sterku móti og sýnir hversu sterk þríþrautarkona hún er orðin.
Sigurvegari í dag var Nicola Spirig frá Sviss, gullverðlaunahafi frá Ólympíuleikunum 2012 og silfurverðlaunahafi frá Ríó. Önnur varð Jess Learmonth frá Bretlandi og Cassandre Baugrand var þriðja.
 

 


Hákon Hrafn Sigurðsson

Síðast breytt þann 10. August 2018 kl: 01:55 af Hákon Hrafn Sigurðsson