Þríþrautarþing 2020

Þríþrautarþing 2020

29 February 2020 17:00

Þríþrautarþing fór fram í fjórða sinn í dag, laugardaginn 29. febrúar 2020.

Dagskrá þingsins var hefðbundin samkvæmt lögum ÞRÍ.

Þingsetning.
Kosning þriggja manna í kjörbréfanefnd. Nefndin skal yfir fara kjörbréf og gera grein fyrir störfum sínum áður en 7. dagskrárliður hefst.
Kosning þingforseta.
Kosning þingritara.
Fráfarandi stjórn gefur skýrslu sína.
Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga ÞRÍ.
Umræður og atkvæðagreiðsla um skýrslu stjórnar og reikninga sambandsins.
Kosning kjörnefndar og skipað í starfsnefndir þingsins.
Stjórnin leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfstímabil, ásamt tillögum um félagagjöld og keppnisgjöld.
Lagðar fram lagabreytingar sem stjórninni hafa borist með löglegum fyrirvara.
Teknar til umræðu aðrar tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnarinnar.
Nefndaálit og tillögur.
Umræður og atkvæðagreiðsla um lagabreytingar og framkomin mál.
Önnur mál.
Álit kjörnefndar.
Kosning stjórnar sbr. 9. gr.
Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
Kosning fulltrúa og varafulltrúa ÞRÍ á Íþróttaþing ÍSÍ árið sem Íþróttaþing fer fram, skv. lögum ÍSÍ.
Þingslit.

 

Kjörinn var nýr forseti, Valerie Maier til tveggja ára.
Kjörnir voru í aðalstjórn Guðbjörg Jónsdóttir og Helgi Sigurgeirsson til tveggja ára og Hákon Hrafn Sigurðsson til eins árs.
Kjörnir voru í varastjórn Ingi B. Poulsen , Sigurjón Ólafsson og Sædís Jónsdóttir til eins árs.
Áfram situr í aðalstjórn Aðalsteinn Friðriksson kjörinn til tveggja ára á 3.þríþrautarþingi haldið 2019.
Fráfarandi úr stjórn eru Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé forseti, Sarah Cushing aðalstjórn og Ragnar Haraldsson varastjórn.

Á þinginu var meðal annars kynnt ný reglugerð um félagaskipti. Dómara- og mótanefnd kynnti uppfærðar keppnisreglur sem teknar verða í gildi á næstunni og borin fram tillaga að breyttu stigakerfi í bikarkeppni ÞRÍ. Einnig var kynnt nýlega uppfærð afreksstefna ÞRÍ og teknar fyrir tillögur frá Ægi um breytingar á afreksstefnu ÞRÍ. Meirihluti þings kaus gegn breytingartillögum á afreksstefnu.

 


Hákon Jónsson

Síðast breytt þann 1. March 2020 kl: 09:13 af Hákon Jónsson