Norðurljósaþríþrautin 2025 - 26. júlí
Norðurljósaþríþraut Skógarbaðanna 2025
Norðurljósin – Perlur Eyjafjarðar, undirdeild UFA býður til keppni í þríþraut, sprettvegalengd þann 26. júlí næstkomandi að Hrafnagili í Eyjafirði. Keppt verður í almennum flokki (4. bikar), opnum flokki og ungmennaþraut fyrir nemendur grunnskóla sem voru í 7-10. bekk síðasta vetur (fædd 2009-2012).
Opinn flokkur er hugsaður fyrir öll þau sem eru EKKI skráð í þríþrautfélög og gefur opni flokkurinn ekki stig í bikarkeppni félaga og einstaklinga.
Forskráningargjald til 1. júlí er 7000 kr en 8500 kr eftir það.
Sprettþraut fullorðnir: Vegalengdirnar verða 750m sund, 22km hjól og 5km hlaup í þessari röð.
Sprettþraut ungmenni: Vegalengdirnar verða 200 m sund, 4 km hjól og 1,2 km hlaup.
Eftir keppni verður boðið upp á léttar veitingar og allir keppendur fá frítt í Skógarböðin. Hægt er að nýta búningsklefa til fataskipta og sturtu eftir keppni eða jafnvel dýfa sér í sund.
Keppnispóstur verður sendur keppendum með kortum og nánari upplýsingum um keppni þegar nær dregur.
Brautarlýsing fyrir fullorðna
Sund: Syntir verða 750m í sundlauginni að Hrafnagili. Laugin er 25m löng og í henni eru 4 brautir. Raðað verður eftir áætluðum sundtímum á brautir. Keppendur fá litamerktar sundhettur til að auðvelda talningu. Talning í sundi er á ábyrgð keppanda en það verður þó flautað þegar 50m eru eftir samkv. talningu á bakka.
Hjól: Hjólaðir eru 22 km. Hjólað er út af skiptisvæði og teknar 3 hægri beygjur á leið út úr hverfinu (Brautarverðir eru við allar beygjur). Þegar komið er út á þjóðveg er hjólað í suður að Botnsreit þar sem snúið er við í útskoti sem þar er. Síðan er hjólað eftir þjóðveginum í norður að afleggjaranum að Kjarnaskógi þar er snúið og hjólað til baka að Hrafnargilshverfinu og sama leið farin inn í hverfið og hjólað var í upphafi.
Hlaup: Hlaupaleiðin er eftir malbikuðum göngustíg, 2.5 km norður frá Hrafnagili að snúningspunkti og sömu leið til baka.
Brautarverðir eru við alla snúningspunkta.
Brautarlýsing fyrir ungmenni
Sund: Syntir verða 200m í sundlauginni að Hrafnagili. Laugin er 25m löng og í henni eru 4 brautir. Raðað verður eftir áætluðum sundtímum á brautir. Keppendur fá litamerktar sundhettur til að auðvelda talningu. Talning í sundi er á ábyrgð keppanda en það verður þó flautað þegar 50m eru eftir samkv talningu á bakka.
Hjól: Hjólaleiðin er u.þ.b. 4km löng eftir gamla þjóðveginum í suður frá Hrafnargilshverfinu (ath hjólaleið gæti breyst vegna byggingavinnu á svæðinu.
Hlaup: Hlaupaleiðin er niður á íþróttavöll austan við íþróttamiðstöðina, þar verða hlaupnir 2 hringir á hlaupabrautinni sem er malarbraut og til baka að marksvæði við íþróttamiðstöðina.
Brautarverðir eru við alla snúningspunkta.
Annað
Reglur í keppninni eru þær sem gilda almennt í keppnum á vegum ÞRÍ https://triathlon.is/upplysingar/keppnisreglur-thri/
Eftir að hjól hefur verið yfirfarið og innritað á skiptisvæði er ekki heimilt að taka það út af skiptisvæði aftur.
Notast verður við tímatökuflögur frá timataka.is ATH keppendur þurfa sjálfir að leiga flögu af tímatöku. Flöguleiga er ekki innifalinn í skráningagjaldi. Keppendur í ungmennaþraut greiða ekki fyrir flögur, linkur fyrir flöguleigu í ungmennaþraut kemur inn fljótlega.
Allar nánari upplýsingar og skilmála er að finna á https://netskraning.is/flogur
Dagskrá: 26. júlí 2025 að Hrafnagili.
09:30 – 10:10 Yfirferð búnaðar og hjóla.
10:15 Kynningarfundur við skiptisvæði
11:00 Ræsing keppni
14:00 Verðlaunaafhending við skiptisvæði
Keppnisstjóri: Sigrún Kristin Jónsdóttir
Yfirdómari: Margrét Magnúsdóttir
Aðstoðardómari: Margrét Ágústsdóttir
Staðsetning: Hrafnagil, Eyjafjarðarsveit
Skipuleggjandi: UFA - Norðurljósin
Start: 26. July 2025 kl: 10:00
Skráning hefst: 12. June 2025 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 23. July 2025 kl: 23:00
Sund: 750m
Hjól: 20km
Hlaup: 5km
16-17 - 7000 kr.
18-19 junior - 7000 kr.
20-29 - 7000 kr.
30-39 - 7000 kr.
40-49 - 7000 kr.
50-59 - 7000 kr.
60-99 - 7000 kr.
Nr. | Nafn | Félag | Aldurshópur | |||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Nafn | ||||||||||||||||||||
1 | Ragnheiður Kara Hólm | Utan félags | 20-29 | |||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||
3 | Arnar Ólafsson | Utan félags | 20-29 | |||||||||||||||||
|
Keppendalisti er birtur með fyrirvara en keppnisstjórn birtir staðfestan endanlegan lista að skráningarfresti loknum.
Severity: Notice
Message: Undefined variable: user
Filename: public/singleRace.php
Line Number: 218
Backtrace:
File: /var/www/vhosts/triathlon.is/httpdocs/application/modules/race/views/public/singleRace.php
Line: 218
Function: _error_handler
File: /var/www/vhosts/triathlon.is/httpdocs/application/third_party/MX/Loader.php
Line: 362
Function: include
File: /var/www/vhosts/triathlon.is/httpdocs/application/third_party/MX/Loader.php
Line: 304
Function: _ci_load
File: /var/www/vhosts/triathlon.is/httpdocs/application/libraries/Template.php
Line: 302
Function: view
File: /var/www/vhosts/triathlon.is/httpdocs/application/modules/race/controllers/Race.php
Line: 401
Function: write_view
File: /var/www/vhosts/triathlon.is/httpdocs/index.php
Line: 315
Function: require_once
Severity: Notice
Message: Trying to get property 'club_id' of non-object
Filename: public/singleRace.php
Line Number: 218
Backtrace:
File: /var/www/vhosts/triathlon.is/httpdocs/application/modules/race/views/public/singleRace.php
Line: 218
Function: _error_handler
File: /var/www/vhosts/triathlon.is/httpdocs/application/third_party/MX/Loader.php
Line: 362
Function: include
File: /var/www/vhosts/triathlon.is/httpdocs/application/third_party/MX/Loader.php
Line: 304
Function: _ci_load
File: /var/www/vhosts/triathlon.is/httpdocs/application/libraries/Template.php
Line: 302
Function: view
File: /var/www/vhosts/triathlon.is/httpdocs/application/modules/race/controllers/Race.php
Line: 401
Function: write_view
File: /var/www/vhosts/triathlon.is/httpdocs/index.php
Line: 315
Function: require_once