ÞríR Femmes rokkar



Það var kvennalið Þríþrautarfélags Reykjavíkur „ÞríR Femmes“ sem vann liðakeppni kvenna í Bláalónsþraut 2010 – 60km fjallahjól. Réttu úrslitin komu því miður ekki í ljós á keppnisdeginum en engu að síður vorum við fljótastar á tímanum 8:11:30. Fengum við gullpenninga og gjafabréf á Lava-restaurant í Bláa lóninu. Við gerðum okkur ferð suðureftir í gær og gæddum okkur á gómsætum mat og skáluðum fyrir sigrinum. Það var ofsalega skemmtilegt og við stelpurnar kynntumst betur. Þökkum HFR fyrir gott framtak!

Og þetta er liðið (frá vi):  Corinna Hoffmann, Inga Dagmar Karlsdóttir, Hulda Björk Pálsdóttir, Hérdís M. Guðjónsdóttir, Rúna Rut Ragnarsdóttir.

  1. #1 by Hákon Hrafn on 16/07/2010 - 18:47

    Flottar

  2. #2 by Helga Árna on 17/07/2010 - 18:40

    Agalega flotta kvinnur :) Flott hjá ykkur!

(will not be published)