20 April 2026 14:04
Komdu þá og prófaðu þríþraut ásamt öðrum unglingum og vinum!
Þríþrautardeild Breiðabliks og Þríþrautarsamband Íslands bjóða upp á skemmtilegt 4 daga sumarnámskeið þar sem þú munt kynnast sundi, hjólreiðum og hlaupi á jákvæðan og hvetjandi hátt, óháð fyrri reynslu eða getu.
Hvað færðu út úr námskeiðinu?
- Skemmtilegar og fjölbreyttar æfingar
- Bætt tækni, þol og sjálfstraust
- Nýja vini og sterka liðsheild
- Lokadag með þríþraut, vegalengd að eigin vali
Æfingum er skipt í hópa eftir aldri og getustigi og þjálfun fer fram undir leiðsögn reyndra unglingaþjálfara, skipulagt af Ragnari Guðmundssyni, verkefnastjóra unglinga hjá Þríþrautarsambandi Íslands.
Upplýsingar:
Aldur: 10–13 ára og 14–16 ára
Dagsetning: 15.–16. + 18.–19. júní 2026
Tími: kl. 9:00–12:00
Mæting alla daga: Smárinn Kópavogi
Þátttökugjald: 8.400 kr.
Þátttökuskilyrði:
Að geta synt 25 m án þess að stoppa
Koma með reiðhjól og hjálm
Skráning fyrir 10.06.2026:
https://forms.office.com/e/248ttEcCZb
Spurningar:
Ragnar Guðmundsson – ragnar@triathlon.is
| +45 2226 5204
Deildu endilega með öðrum. Fullkomin byrjun á virku og skemmtilegu sumri.
Geir Ómarsson
Síðast breytt þann 20. April 2026 kl: 14:26 af Geir Ómarsson
