11 May 2026 11:00
Fyrsta þríþraut keppnistímabilsins, Kópavogsþríþrautin fór fram um helgina í mildu hæglætis veðri. Í þrautinni syntu keppendur 400 metra í Kópavogslaug, hjóluðu 10 km um vesturbæ Kópavogs og þrautinni lauk með 3,6 km hlaupi. Metþátttaka var í keppninni í ár.
Í almennum flokki karla flokki sigraði Sigurður Örn Ragnarsson Breiðabliki með nokkrum yfirburðum en þetta var ellfta árið í röð sem Sigurður sigrar en hann hefur haft yfirburði undanfarin ár í greininni. Annar varð Stefán Karl Sævarsson Breiðabliki og þriðji Geir Ómarsson Ægi.
Í kvennaflokki var heldur meiri spenna en Bjarkey Jónasdóttir Ægi og hin franska Mae Chemin einnig úr Ægi komu saman upp úr lauginni. Þær skiptust á að vera með forystu en Brynja Dögg Sigurpálsdóttir Ægi blandaði sér einnig í baráttuna. Það fór svo að lokum að Mae sigraði eftir virkilega sterkt hlaup. Önnur varð Bjarkey og Brynja tók þriðja sætið en innan við mínúta var á milli þeirra þriggja.
Í opna flokknum sigruðu þau Kristín Helga Hákonardóttir SH og Louison Curschellas. En í þeim flokki keppa þau sem ekki eru skráð í þríþrautarfélag.
Næsta keppni Sprettþraut 3SH verður þann 7. júli næstkomandi í Hafnarfirðinum.
Geir Ómarsson
Síðast breytt þann 11. May 2026 kl: 11:02 af Geir Ómarsson
