Hin frábæra Krakka og unglinga sprettþraut 3SH verður 7. júní

Hin frábæra Krakka og unglinga sprettþraut 3SH verður 7. júní

7 May 2026 11:43

Krakkaþríþraut og unglinga sprettþraut 3SH fer fram sunnudaginn 7. júní 2026 kl. 12:30 í og við Ásvallalaug.

Þríþrautin samanstendur af sundi, hjólreiðum og hlaupi.
Vegalengdir eftir aldri:
• 5–6 ára (2020–2021): 16 m sund í grunnlaug, 500 m hjól og 300 m hlaup
• 7–9 ára (2017–2019): 33 m sund í grunnlaug, 1 km hjól og 600 m hlaup
• 10–12 ára (2014–2016): 50 m sund í djúplaug, 2 km hjól og 900 m hlaup
• 13–17 ára (2009–2013): 100 m sund í djúplaug, 3 km hjól og 1 km hlaup
Ræst verður í hollum eftir aldri. Yngstu börnin hefja keppni kl. 12:30 og síðan verður ræst koll af kolli. Unglingar (2009–2013) hefja keppni kl. 13:10.
Yngstu þátttakendur (5–6 ára) mega synda með kúta. Alltaf er í lagi að stoppa og hvíla sig ef þörf krefur.
Skiptisvæði verður á grasinu næst sundlauginni. Skila þarf hjól, fatnaði og skóm sem krakkarnir keppa í á skiptisvæðið fyrir keppni. Keppendur hlaupa úr sundlauginni í sundfötum yfir á skiptisvæðið, þar sem þau klæða sig í viðeigandi fatnað, skó og hjálm fyrir hjólið. Eftir hjólreiðarnar koma þau aftur inn á skiptisvæðið, leggja frá sér hjólið og hjálminn og klæða sig fyrir hlaupið.
Foreldrum er heimilt að hjóla og hlaupa með yngstu börnunum ef þau treysta sér ekki ein.
Engin þátttökugjöld – bara gleði!
Allir þátttakendur fá stuttermabol, verðlaunapening og glaðning að lokinni þraut.
Skráning:
Forskráning fer fram í gegnum Google Docs: https://forms.office.com/e/ewXcERQbXc
Við hvetjum alla til að skrá sig sem fyrst til að auðvelda skipulag, en skráningu lýkur 6. júní kl. 18:00.
Einnig verður hægt að skrá á staðnum 7. júní milli kl. 11:30 og 12:00 í Ásvallalaug.
Bakhjarlar:
Rannsóknamiðstöð Íslands, Þríþrautasamband Íslands (ÞRÍ), Hafnarfjarðarbær og Mjólkursamsalan (MS).
Frekari upplýsingar veitir Steffi Gregersen á Messenger eða í tölvupósti: steffiotto@hotmail.com
Sjáumst hress!
3SH
------------------------------------------------------------------------
Kids Triathlon and Junior Sprint Triathlon 3SH will be held on Sunday, June 7, 2026, at 12:30, in and around Ásvallalaug.
The triathlon consists of swimming, cycling, and running.
Distances by age group:
• Ages 5–6 (2020–2021): 16 m swim in the shallow pool, 500 m bike, 300 m run
• Ages 7–9 (2017–2019): 33 m swim in the shallow pool, 1 km bike, 600 m run
• Ages 10–12 (2014–2016): 50 m swim in the deep pool, 2 km bike, 900 m run
• Ages 13–17 (2009–2013): 100 m swim in the deep pool, 3 km bike, 1 km run
The youngest participants will start at 12:30, with subsequent age groups starting one after another. Teenagers (2009–2013) will start at 13:10.
The youngest children (ages 5–6) may use floatation aids if needed. Participants are also allowed to stop and rest at any time if necessary.
The transition area will be on the grass next to the pool. Bikes, clothing, and shoes that the children will use during the race must be brought to the transition area before the start.
Participants will run from the pool in their swimsuits to the transition area, where they will change into appropriate clothing, shoes, and helmets for the bike segment. After cycling, they will return to the transition area, leave their bikes and helmets, and change for the run.
Parents are allowed to accompany the youngest children on the bike and run if needed.
Participation is free of charge.
All participants will receive a T-shirt, a medal, and a goodie bag after completing the triathlon.
Registration:
Pre-registration is available via this form: https://forms.office.com/e/ewXcERQbXc
We encourage parents to register their children as early as possible—no later than June 6th at 18:00—to help us organize the event efficiently.
On-site registration will also be available on June 7 between 11:30 and 12:00 at Ásvallalaug.
Sponsors:
The icelandic centre for research, the Icelandic Triathlon Federation, Hafnarfjörður Municipality, and Mjólkursamsalan (MS).
For more information, contact Steffi Gregersen via Messenger or email steffiotto@hotmail.com
Sjáumst hress!
3SH

Geir Ómarsson