Góður árangur hjá Ragnari Guðmundssyni í ólympískri þraut



Þann 18. júlí sl.  keppti Ragnar Guðmundsson fyrrum sundmaður og Íslandsmethafi í 1500m skriðsundi í ólympískri þríþraut í Hamborg. Þrautin er haldin af alþjóðaþríþrautasambandinu og er hluti af heimsmótaröðinni í ólympískri þríþraut. Í Hamborg kepptu margir af bestu þríþrautamönnum heims úr hópi atvinnumanna. Í hópi áhugamanna varð Ragnar nr. 14 af 2860 keppendum og nr. 3 í aldurshópnum 40-44 ára. Er þetta frábær árangur og verður spennandi að fylgjast með Ragnari í framtíðinni.

Árangur hans varð annars eftirfarandi eftir greinum og T1 og T2:
Sund: 20:10 mín
T1: 4:02
Hjól: 1:05,35 klst
T2: 2:41
Hlaup: 36,29 mín.

Nánari upplýsingar og úrslit er hægt að skoða inn á http://www.hamburg-triathlon.org/

  1. No comments yet.
(will not be published)