Skylduáhorf fyrir Kaupmannahöfn



Bróðir Stefán skrifar frá Kaupmannahöfn:

“Ég var að rekast á upplagt efni fyrir þá sem fara til Kaupmannahafnar, Challenge Copenhagen. Um er að  ræða nokkur myndbönd, sem mótshaldarar (þar á meðal Thorbjörn Sindballe) hafa gert um keppnina.Þarna er ýmis fróðleikur, bæði fyrir keppendur og stuðningslið.

Góð lýsing af leiðunum er í vídeó #7 og svo er líka fjallað um hvaða orkudrykkir og orkubitar eru í boði.”

Þetta er á síðu danska þríþrautarsambandsins.

  1. #1 by Steffi on 29/07/2010 - 10:50

    Rosalega flott hjól sem hann á :) ) :)

  2. #2 by HelgiHinriks on 29/07/2010 - 12:45

    Ég dauðöfunda þá sem eru að fara út að keppa. Var nú rétt í því að skoða video nr.7
    http://www.youtube.com/watch?v=qCCA7UgSKRM

    Þessi keppni lofar góðu, synt í sjónum, hjólað í flottu landslagi og hlaupið um Köben.. Magnað..

    Gangi þeim vel sem eru að fara út og njótið…
    ps. hvað eru annars margir að fara út að keppa?

  3. #3 by Corinna on 30/07/2010 - 10:26

    Sammála Helga, dauðöfunda ykkur sem fara í Köben. Amk. mjög spennt fyrir ykkkur. Það er flottur og skemmtilegur hópur.
    Nú er bara að dulla sér í tapering og ekki missa þólinmæði með það ;)
    Gangi ykkur sem allra best í Köpen. Fylgjumst með ykkur.
    Baráttukveðjur Corinna

(will not be published)