Archive for category Þríþraut

Nýtt Íslandsmet í Ironman karla

Mynd í eigu Steins, tekið af FB

Það var sannkölluð þríþrautarhelgi nú um helgina þegar stærsti þríþrautarviðburður í Evrópu átti sér stað í Köln.  Fjórir þátttakendur frá Íslandi tóku þátt í ýmsum vegalengdum.  Þeir Steinn Jóhannsson og Ásgeir Elíasson tóku þátt þátt í Ironman vegalengd, Steffi Gregersen tók þátt í Ironman 70.3 og Torben Gregersen tók þátt í Ólympískri vegalengd. 

Steinn Jóhannsson stóð sig gríðarlega vel, Steinn bætti sinn besta tíma um 14 mínútur og 7 sekúndur og bætti Íslandsmet Einars Jóhannssonar sem hann setti í Roth 1996 um sjö sekúndur.  Tími Steins var 9:24:46 og náði hann öðru sæti í sínum aldursflokki og 14 sæti yfir heildina. Áhugasamir geta skoðað æfingadagbók Steins á hlaup.com en það er vel þekkt að hann er duglegur drengur.  Ásgeir Elíasson var mjög sterkur framan að en samkvæmt umræðuþræði Kölnarkarlsins á hlaup.com þjáðist Ásgeir af magakrömpum þegar líða fór á hlaupið og telst hann mjög sterkur að hafa náð að klára yfirleitt. Tími Ásgeirs var 13:56:37. æfingadagbók Ásgeirs má nálgast hér.

Þríþrautarhjónin Steffi og Torben Gregersen voru að gera góða hluti, Steffi náði sínum besta árangri í Ironman 70.3 og Torben náði tímanum 2:08:28 í Ólympískri vegalengd og 6 sæti yfir heildina og þriðja sæti í sínum aldursflokki.

Hér er hlekkur í picasa myndaalbúm Steins, þar eru myndir af öllum keppendum og aðstandendum keppenda en þeir eiga jú stóran þátt í þessu öllu saman.

Hér er hlekkur í afrekaskrá

Hér er hlekkur í skjámynd af úrslitum fyrstu 16 sætunum í Ironman vegalengd.

No Comments

Frábær árangur ChallengeCPH

Mynd sem Vignir Sverrisson á

Name Category Start Time Last Seen Race Time
Vignir Thor Sverrisson M30-34 07:14:42 Finish (Run 42,2 km) 10:15:40
Trausti Valdimarsson M50-54 07:24:25 Finish (Run 42,2 km) 10:30:19
Sigmundur Stefansson M55-59 07:24:25 Finish (Run 42,2 km) 10:37:37
Gylfi Gudnason M40-44 07:34:55 Finish (Run 42,2 km) 10:39:35
Stefan Einarsson M45-49 07:24:25 Finish (Run 42,2 km) 11:39:10
Stefan Vidar Sigtryggsson M40-44 07:24:25 Finish (Run 42,2 km) 11:46:01
Einar Finnur Valdimarsson M40-44 07:45:05 Finish (Run 42,2 km) 11:48:24
Asdis Kristjansdottir F40-44 07:04:36 Finish (Run 42,2 km) 11:49:35
Oddgeir Gylfason M50-54 07:54:42 Finish (Run 42,2 km) 11:51:15
Halfdan Freyr Ornolfsson M35-39 07:04:36 Finish (Run 42,2 km) 12:15:35
Pétur Helgason M50-54 07:24:25 Finish (Run 42,2 km) 12:16:46
Krisbjörn R. Sigurjónsson M50-54 07:14:42 Finish (Run 42,2 km) 12:18:50
Helga Arnadottir F30-34 07:04:36 Finish (Run 42,2 km) 12:44:31
Erlendur Birgisson M50-54 07:14:42 Finish (Run 42,2 km) 12:58:08
Hrefna Sylvia Sigurgeirsdottir F30-34 07:04:36 Finish (Run 42,2 km) 13:29:22
Asgeir Eliasson M45-49 07:24:25 dekk rifnaði (hætti) 10:09:09
Rannveig Halldórsdóttri F45-49 07:04:36   00:00:00
Hávar Sigurjónsson M50-54 07:45:05   00:00:00
Elías Kristjánsson M35-39 07:54:42   00:00:00

4 Comments

Sautján Íslendingar í Challenge Copenhagen

Challenge Copenhagen 2010

Sunnudaginn 15. ágúst munu 17 íslendingar taka þátt í Járnkarli í Kaupmannahöfn.  Aldrei hafa fleiri Íslendingar tekið þátt í slíkri keppni.  Keppnin samanstendur af 3,8km sundi / 180km hjóli / 42,2km hlaupi.  Hópurinn er búinn að æfa vel og því allt útlit fyrir góðan árangur.  Hægt verður að fylgjast með keppendum á www.challengecopenhagen.com á keppnisdegi en auk þess verður fylgst með  á www.triathlon.is og www.hlaup.com  

Nr. Þátttakandi Aldursflokkur Sveitarfélag
166 Helga Árnadottir F30-34 Kópasker (ISL)
169 Hrefna Sylvía Sigurgeirsdóttir F30-34 Kópavogur (ISL)
119 Ásdis Kristjánsdóttir F40-44 Kópavogur (ISL)
651 Vignir Þór Sverrisson M30-34 Reykjavík (ISL)
1664 Elías Kristjánsson M35-39 Holsterbro (DEN)
158 Hálfdán Freyr Örnólfsson M35-39 Keflavík (ISL)
1360 Einar Finnur Valdimarsson M40-44 Mosfellsbær (ISL)
1066 Gylfi Guðnason M40-44 Reykjavík (ISL)
757 Stefán Viðar Sigtryggsson M40-44 Kópasker (ISL)
921 Ásgeir Elíasson M45-49 Kópavogur (ISL)
755 Stefán Einarsson M45-49 Reykjavík (ISL)
460 Erlendur Birgisson M50-54 Kópavogur (ISL)
527 Kristbjörn R. Sigurjónsson M50-54 Ísafjörður (ISL)
1807 Oddgeir Gylfason M50-54 Reykjavík (ISL)
770 Pétur Helgason M50-54 Reykjavík (ISL)
917 Trausti Valdimarsson M50-54 Reykjavík (ISL)
753 Sigmundur Stefánsson M55-59 Selfoss (ISL)

2 Comments

Ironman 70.3 – 2010

Intersport hálfi járnkarlinn var haldin 11. júlí 2010. Sett voru Íslandsmet bæði í karla og kvennaflokki, tíminn í karlaflokki er 4:23:13 og í kvennaflokki er hann 5:20:11
Hér fyrir neðan má sjá flott myndand af viðburðinum.

YouTube Preview Image

No Comments

Hálf ólympísk þraut í Hafnarfirði

Það viðraði ágætlega í morgun þegar 16 keppendur voru ræstir í Ásvallalaug og svömluðu þar sína 750 metra, hver með sínum stíl.  Fyrstur upp úr lauginni var Ólafur Marteinsson og síðan kom Jón Hugi, Kristín Laufey, Helgi Hinriks og María Ögn, sem stytti sumarfríið sitt til að ná einni þraut fyrir haustið. Allir skiluðu sér upp úr og þá tók við hjólaleggurinn þar sem nokkur vindur var í fangið upp Krísuvíkurveginn en meðvindur niðureftir sem skilaði keppendum háum tölum á hraðamæli og eins gott að lögreglan var ekki til svæðis.

Forskot Óla var orðið að tæpum sjö mínútum þegar hjólinu lauk en þar fór Helgi mikinn og kom annar inn. 2 mínútum síðar kom Trausti og reyndi ákaflega að ná Helga, náði besta hlaupatíma dagsins við það, en Helgi hélt öðru sætinu. Fjórði var Gunnar Stefáns, sem að eigin sögn á mikið inni á sundinu en átti mjög góðan dag á hjóli og hlaupum. Fimmta í mark var svo María Ögn, sigurvegari í kvennaflokki.

Öll úrslit er að finna á hlaup.com, ásamt millitímum og þar má margan fróðleiksmolann finna. Keppnin þótti annars takast vel og settu börn keppenda skemmtilegan svip á áhorfendasvæðið þar sem þau biðu spennt og fengu auðvitað Prins póló og banana að smjatta. Vífilfell sá um drykkina með milligöngu herra Formannsins og Ásbjörn Ólafsson gaf Prins póló með milligöngu Þórólfs. Þar að auki lagði ÍBH til keppnisstjóra og sundlaug og SH-félagar sáu um talningu. Gott er að eiga góða að, enda yrði engin keppni ef ekki fengist starfsfólk.

Myndir voru teknar

HEILDARÚRSLIT Hálf Ólympísk

Röð Nafn Fæð.ár 750 M 20 km 5 km Samtals
1 Ólafur Marteinsson 1988 00:10:43 00:32:54 00:20:31 01:04:09
2 Helgi Hinriksson 1972 00:13:39 00:36:12 00:21:07 01:10:58
3 Trausti Valdimarsson 1957 00:14:47 00:37:13 00:19:59 01:12:00
4 Gunnar Stefánsson 1980 00:17:00 00:37:18 00:21:21 01:15:39
5 Jón Hugi Harðarson 1963 00:12:10 00:43:32 00:21:57 01:17:41
6 María Ögn 1980 00:14:28 00:41:08 00:22:25 01:18:02
7 Hartmann Bragason 1953 00:16:39 00:40:44 00:23:52 01:21:17
8 Margrét Pálsdóttir 1978 00:18:22 00:38:50 00:24:48 01:22:01
9 Valgeir Pétursson 1967 00:18:00 00:41:00 00:23:08 01:22:09
10 Ásmundur Helgi Steindórsson 1976 00:15:20 00:43:29 00:23:44 01:22:34
11 Kristín Laufey Steinadóttir 1979 00:13:16 00:45:19 00:24:18 01:22:55
12 Corinna Hoffmann 1973 00:17:15 00:42:57 00:24:39 01:24:52
13 Sigurður Örn Eiríksson 1970 00:19:56 00:42:26 00:22:55 01:25:18
14 Stefanie Gregersen 1976 00:16:31 00:40:40 00:30:37 01:27:48
15 Jón Sigþór Jónsson 1973 00:19:34 00:44:09 00:26:43 01:30:27
16 Stefán Reynisson 1979 00:20:53 00:45:25 00:24:40 01:30:59
             
             
   Flokkaúrslit Karlar          
             
Röð Nafn Fæð.ár 750 M 20 km 5 km Samtals
1 Ólafur Marteinsson 1988 00:10:43 00:32:54 00:20:31 01:04:09
2 Helgi Hinriksson 1972 00:13:39 00:36:12 00:21:07 01:10:58
3 Trausti Valdimarsson 1957 00:14:47 00:37:13 00:19:59 01:12:00
4 Gunnar Stefánsson 1980 00:17:00 00:37:18 00:21:21 01:15:39
5 Jón Hugi Harðarson 1963 00:12:10 00:43:32 00:21:57 01:17:41
6 Hartmann Bragason 1953 00:16:39 00:40:44 00:23:52 01:21:17
7 Valgeir Pétursson 1967 00:18:00 00:41:00 00:23:08 01:22:09
8 Ásmundur Helgi Steindórsson 1976 00:15:20 00:43:29 00:23:44 01:22:34
9 Sigurður Örn Eiríksson 1970 00:19:56 00:42:26 00:22:55 01:25:18
10 Jón Sigþór Jónsson 1973 00:19:34 00:44:09 00:26:43 01:30:27
11 Stefán Reynisson 1979 00:20:53 00:45:25 00:24:40 01:30:59
             
   Flokkaúrslit konur          
             
Röð Nafn Fæð.ár 750 M 20 km 5 km Samtals
1 María Ögn 1980 00:14:28 00:41:08 00:22:25 01:18:02
2 Margrét Pálsdóttir 1978 00:18:22 00:38:50 00:24:48 01:22:01
3 Kristín Laufey Steinadóttir 1979 00:13:16 00:45:19 00:24:18 01:22:55
4 Corinna Hoffmann 1973 00:17:15 00:42:57 00:24:39 01:24:52
5 Stefanie Gregersen 1976 00:16:31 00:40:40 00:30:37 01:27:48

2 Comments

Skráning í Intersport hálfa járnkallinn 2010

Til að auðvelda við skráningu í Intersport hálfa járnkallinn er hægt að ýta á linkinn hér fyrir neðan og þá fer maður beint í skráningaformið hjá hlaup.is.

https://secure.islandia.is/hlaup/skraningar/SkraningHalfurJarnkarl2010.asp

Þegar skráning hefur farið fram þá er æskilegt að viðkomandi sendi sem fyrst upplýsingar um sundtíma fyrir 1,9 km sund til mótshaldara, viðtakandi er Róbert (robert.petursson@gmail.com).

No Comments

Intersport hálfi járnkallinn

Intersport hálfi járnkallinn
Sunnudaginn 11. júlí fer fram  hálfur járnkarl í Hafnarfirði og hefst keppnin kl. 8:30 við Ásvallalaug. Að  keppninni standa Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) og Sundfélag Hafnarfjarðar, þríþrautadeild með aðkomu Þríþrautasambands Íslands.
Vegalengdir eru: 1,9 km sund, 90 km hjól, 21.1 km hlaup.
Synt verður í Ásvallalaug, hjólað á Krísuvíkurvegi og hlaupið um Vallahverfið. Skiptisvæði er við Ásvallalaug og þar er einnig drykkjar- og þjónustustöð, salerni, gæsla fyrir hjól og dót. Einnig verður drykkjarstöð við hringtorg á Krísuvíkurvegi.
Synt verður í 50 metra laug, hjólaðir 6 hringir á Krísuvíkurvegi og hlaupaleiðin verður fjórir hringir. Boðið verður uppá brautarskoðun þann 10. júlí. 
Skráning verður opin til og með 8. júlí. Einnig er hægt að skrá lið til leiks. Verðlaun verða veitt fyrir:
·         Besta tíma í karla- og kvennaflokki.
·         Fyrsta lið.
·         Fyrstu þrjú sætin í flokki 39 ára og yngri.
·         Fyrstu þrjú sætin í flokki 40 ára og eldri.
·         Auk þess fá allir þátttökuverðlaun.

Skráning fer fram á hlaup.is og greiða þarf keppnisgjald við skráningu, tilgreina þarf tíma fyrir 1,9 km sund með því að senda tíma á mótshaldara. Skráningargjald er kr. 6000, bæði fyrir einstakling- og liðakeppni. Nánari upplýsingar er að finna hér og einnig veitir Róbert (robert.petursson@gmail.com) frekari upplýsinga.

No Comments

Tímar Karenar

Karen AXELSDOTTIR

BIB AGE STATE/COUNTRY PROFESSION
79 35 London Iceland Personal Trainer
 

SWIM BIKE RUN OVERALL RANK DIV.POS.
58:26 5:47:35 4:01:07 10:56:23 337 95

 

LEG DISTANCE PACE RANK DIV.POS.
TOTAL SWIM 2.4 mi. (58:26) 1:32/100m 429 102
 
 
BIKE – 18.6 mi 1:57:03
18.6 mi @ 53:46
20.76 mph  
BIKE – 37.3 mi 2:52:59
18.7 mi @ 55:56
20.06 mph  
BIKE – 55.9 mi 3:49:58
18.6 mi @ 56:59
19.58 mph  
BIKE – 74.5 mi 4:48:48
18.6 mi @ 58:50
18.97 mph  
BIKE – 93.2 mi 5:46:00
18.7 mi @ 57:12
19.62 mph  
BIKE – 112 mi 6:50:52
18.8 mi @ 1:04:52
16.65 mph  
TOTAL BIKE – 112 miles 5:47:35 19.33 mph 471 125
 
RUN – 2.3 mi 7:12:12
2.3 mi @ 16:56
7:21/mi  
RUN – 6.6 mi 7:50:26
4.3 mi @ 38:14
8:53/mi  
RUN – 11.1 mi 8:28:42
4.5 mi @ 38:16
8:30/mi  
RUN – 15.4 mi 9:11:11
4.3 mi @ 42:29
9:52/mi  
RUN – 19.9 mi 9:52:50
4.5 mi @ 41:39
9:15/mi  
RUN – 23 mi 10:36:36
3.1 mi @ 43:46
14:07/mi  
RUN – 26.2 mi 10:56:23
3.2 mi @ 10:56:23
25:07/mi  
TOTAL RUN – 26.2 miles 4:01:07 9:12/mi 337 95
 
TOTAL RUN 26.2 mi. (4:01:07) 9:12/mile 337 95
   
TRANSITION TIME
T1: SWIM-TO-BIKE 4:51
T2: BIKE-TO-RUN 4:24

5 Comments

Sundhettur „Triathlon Iceland“

Sérmerktar sundhettur merktar „Triathlon Iceland“ eru nú fáanlegar í rauðum lit. Um er að ræða hágæða silicone hettur frá Speedo
Sundhetturnar eru seldar á kostnaðarverði eða 2000 kr.
Pantaðu þér eintak með því að senda Rémi tölvupóst remisp50(hjá)hotmail.com

Sérmerktar Sundhettur

No Comments

Jákvætt viðhorf – [Karen]

Karen Axels hefur verið dugleg að senda inn pistla á mbl.is og kíkir undirritaður reglulega inn á síðuna til að kanna hvort að nýtt efni hafi borist.
Nú síðast sendi hún inn pistilinn “Jákvætt viðhorf” kíktu á hann.

No Comments