Greinargerð og úrskurður



Formáli:

Í ÓL-þrautinni 6. júní var keppandi dæmdur úr leik á hlaupalegg vegna styttingar

Um þetta mál var upphaflega fjallað á vefsíðu Evu M. Einarsdóttur, og síðar á bloggsíðu undirritaðs. Í kjölfar þess var mér, 25. júlí, send ljósmynd af keppanda  í Hálfkarlinum 11. júlí sl. þar sem fram kemur að keppandinn hafi verið með Ipod á hlaupalegg, sem er i trássi við bandarísku þríþrautarreglurnar, sjá nánar í úrskurði. Sendandi vildi ekki senda þetta meinta brot inn sem ábendingu/fyrirspurn/kæru til keppnisstjórnar, heldur var spenntur að sjá hvað ég myndi gera við myndina. Ég sendi tafarlaust beiðni til keppnisstjóra um úrskurð í málinu og liggur sá nú fyrir:

“Hafnarfirði 25. júlí, 2010

Frá: Róbert Pétursson, keppnisstjóri Hálfkarlsins í Hafnarfirði, 11. júlí, 2010

Til: Keppnishaldarar, ÞRÍH

Efni: Ábending um brot á keppnisreglum. Úrskurður.

Keppnisstjóri fékk þann 25. júlí, ábendingu um meint brot á keppnisreglum sem átti sér stað í Hálfkarlinum, (Half Ironman Distance) 11. júlí, 2010.  Skv. meðfylgjandi ljósmynd hefur keppandi í kvennaflokki nr. 778 heyrnartól(ipod) en það er óheimilt samkvæmt 3.4(i) í reglum bandaríska þríþrautarsambandsins, væntanlega með öryggi keppenda í huga í fjölmennri keppni.

Almennar keppnisreglur höfðu fyrir keppnina verið birtar á triathlon.is og við þær var stuðst. Vegna fyrirspurnar nokkurra keppenda heimilaði keppnisstjóri notkun Ipod, einkum vegna fjölda keppenda og lengdar leiðar, enda er Ipod-notkun leyfð t.d. í þýsku reglunum.

Keppnisstjóri vill taka fram að almennt er miðað við að allar breytingar á úrslitum komi fram eigi síðar en tíu dögum eftir að keppni lýkur. Viðkomandi ábending kemur 14 dögum eftir keppni. Heimilt er að áfrýja úrskurði keppnisstjóra til sérstakrar kærunefndar.

Róbert Pétursson

keppnisstjóri”

Vegna þess sem ýjað er að í formála er þessi úrskurður ásamt greinargerð birtur hér. Öllum er frjáls að tjá sig um hann, enda er athugasemdakerfi opið.

Virðingarfyllst

Gísli Ásgeirsson

gisli (hja)internet.is

  1. #1 by gisli on 26/07/2010 - 14:20

    Þar sem minnst er á bloggsíðu Evu M. Einarsdóttur í þessari færslu og frekari vangaveltur hennar hafa nú birst þar í framhaldi af þessari greinargerð, verður að taka þetta fram hérna, þar sem væntanlega er enn lokað fyrir athugasemdir hjá EME.

    Í færslu á triathlon.is segi ég eftirfarandi 7 júní.
    “Af gefnu tilefni hafa reglur bandaríska þríþrautarsambandsins legið á skrifborðinu í dag og þar er margan fróðleiksmolann að finna. Í ljósi reynslunnar tel ég rétt að sem flestir lesi þær og hafi í huga fyrir næstu þraut. Því skýrari sem regluramminn er, þeim mun auðveldari er framkvæmd keppninnar og öryggi þátttakenda meira.

    Þarna eru ýmis ákvæði sem eiga varla við hér heima vegna smæðar okkar og keppendafæðar en þeir sem hugsa stórt og ætla út í heim, þurfa að kunna skil á öllum helstu reglunum. Við þurfum líka að ræða þetta á næsta stjórnarfundi sambandsins.”
    Vakin er athygli á fyrstu setningu síðari málsgreinar. Að öðru leyti skýrir þetta sig sjálft.

    Á triathlon.is eru einnig birtar keppnisreglur fyrir þríþraut, lauslega samdar af keppnishöldurum.

  2. #2 by gisli on 26/07/2010 - 14:39

    Taka tvö:
    Almennar keppnisreglur eru hérna, http://triathlon.is/?page_id=779. Keppnisstjóri hafði að öðru leyti alræðisvald um reglur og mótshaldarar, (við Steinn), sem vorum einnig keppendur, skiptum okkur ekki af öðru en að smala verðlaunum og útdráttarverðlaunum og vera til ráðagerða um vafaatriði.
    Skoðun á triathlon.is sýnir að hvergi er tekið sérstaklega fram að farið sé eftir bandarísku reglunum.

  3. #3 by EinarFinnur on 26/07/2010 - 15:17

    Mér finnst nú við hæfi að birta hluta úr reglum Challenge Copenhagen þar sem við erum nokkur að fara þangað. Þar er fjallað um notkun MP3 spilara. Bls 13 og 15 héðan:

    http://www.challengecopenhagen.com/en/challenge-copenhagen/race-info/athletes-guide

    Pease note the Mp3 players and other headphones are strictly forbidden on the bike course,
    athletes not obeying this will be disqualified.

    Mp3 players and headphones may be used on the run course. The volume must however be
    kept at a minimum, so the athlete can hear a bell from behind. Failure to comply with this
    rule will cause a penalty.

  4. #4 by Steffi on 26/07/2010 - 15:37

    Skv. mínum upplysingum voru reglur fyrir Hálfur Járnkarl á Íslandi eftirfarandi: http://triathlon.is/?page_id=779

    Á neinum stað stendur að farið er eftir bandarískar reglur í keppnina! ?

    Þetta lítur að vera miskilning!!

  5. #5 by Róbert on 26/07/2010 - 15:56

    Til að taka allan vafa af hvað varðar keppnisreglur í hálfa járnkallinum 11. júlí síðast liðinn, þá eru þær birtar eins og Gísli bendir réttilega á (http://triathlon.is/?page_id=779). Einnig koma fram þar almenn atriði fyrir keppendur og myndir af leiðum þ.e.a.s. fyrir hjóla- og hlaupaleið. Eva talar um á bloggsíðu sinni ( http://www.evaogco.com/) að vísað sé til bandarísku keppnisreglnanna við skráningu og það er rangt, eins og sést hér https://secure.islandia.is/hlaup/skraningar/SkraningHalfurJarnkarl2010.asp

    Það kemur hvergi fram að mótshaldarar hafi stuðst við bandarísku reglurnar.

    Ekki var gerð athugasemd við notkun á Ipod eða annarskonar tæki til að geta haft tónlist á hjóla- og hlaupaleið þar sem keppandi fékk leyfi starfmanna keppninar fyrir því.

    Samkvæmt þessu þá get ég ekki annað en sagt að þessi umræða í þessu samhengi sé ekki á rökum reist þar sem reglur keppninar banna ekki notkun á Ipod, þ.e.a.s. að hafa tónlist á meðan keppni stendur. Ekki verður farið út í einhverjar breytingar á tíma keppanda með því að láta viðkomandi fá tímavíti eða ógilda þátttöku hans og því standa úrslitin eins og þau eru núna.

    En aftur á móti er þörf á því að Þríþrautarsamband Íslands setji saman keppnisreglur fyrir þær þríþrautir sem verða haldnar í framtíðinni. Ekki ætla ég að fara hér út í það hér hvað í þeim ætti að vera en þó vill ég koma því á framfæri að taka verður mið af íslenskum aðstæðum.

    Kv
    Róbert Pétursson, keppnistjóri

  6. #6 by gisli on 26/07/2010 - 16:56

    Þetta þykja mér ágætar umræður og málefnalegar. Gott að geta haft þetta á einum stað, enda óhætt að hafa opið athugasemdakerfi í okkar litla þríþrautarsamfélagi þar sem öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir og geta verið ósammála öðru hverju.
    Ég tek undir síðustu málsgreinina hjá Róberti um þörfina á keppnisreglum með góðum fyrirvara fyrir næsta ár. Þar hefur ÞRÍ verk að vinna. Keppnir sumarsins fara í reynslubankann og svo mætum við kát og hress í næstu þraut.

(will not be published)