Stefán Karl og Ásta Rún Íslandsmeistarar í ofursprettþraut

Stefán Karl og Ásta Rún Íslandsmeistarar í ofursprettþraut

31 August 2026 12:55

Íslandsmót 3N í ofursprettþraut fór fram í Reykjanesbæ um helgina við frábærar aðstæður. 65 þátttakendur voru skráðir til leiks en keppendum hefur fjölgað jafnt og þétt í keppninni undanfarin ár. Keppnin var jafnframt síðasta keppni ársins.

Vegna vegaframkvæmda var boðið upp á nýja keppnisleið í ár og létu keppendur vel af henni.

Gríðarleg spenna var í karlaflokki en aðeins 42 sekúndur skildu að fyrstu fjóra keppendurna í mark og innan við tvær mínútur fyrstu sex. Stefán Karl Sævarson úr Breiðabliki og Kári Steinn Kjartansson úr Ægi komu fyrstir upp úr sundinu.

Á hjólinu var það Ingvar Þór Bjarnason úr Ægi sem hjólaði hraðast og var kominn með forystu eftir hjólalegginn. Stefán Karl, Kári Steinn, Hákon Hrafn og Samúel White voru þó ekki langt undan.

Á hlaupinu náði Stefán Karl forystunni og hélt henni allt til enda. Hann varð þar með Íslandsmeistari í ofursprettþraut. Ingvar Þór varð annar og Kári Steinn þriðji.

Bestu tímar í einstakri grein – karlar:

Sund: Stefán Karl – 5:46
Hjól: Ingvar Þór – 16:52
Hlaup: Jakob Þór – 10:19

Hjá konunum var einnig mikil spenna. Diljá Heimisdóttir úr UMFN leiddi keppnina eftir sundið. Á hjólinu tók Brynja Dögg Sigurpálsdóttir úr Ægi forystuna en Ásta Rún Ingvadóttir úr Ægi fylgdi fast á eftir.

Á hlaupinu fór Ásta gríðarlega hratt og hljóp 2,8 km á 10:30 sem gerir 3:45 mín/km að meðaltali. Hún tók forystuna og hélt henni allt til enda og varð þar með Íslandsmeistari í fyrsta sinn. Brynja Dögg varð önnur og Bethany Marguerite Bronkema úr Ægi varð þriðja.

Bestu tímar í einstakri grein – konur:

Sund: Diljá Heimisdóttir – 6:36
Hjól: Brynja Dögg Sigurpálsdóttir – 19:24
Hlaup: Ásta Rún Ingvadóttir – 10:30

ÞRÍ þakkar 3N fyrir frábæra keppni og öllum keppendum og sjálfboðaliðum fyrir frábæran dag.


Geir Ómarsson

Síðast breytt þann 31. August 2026 kl: 12:58 af Geir Ómarsson