18 August 2026 11:47
Orbea Þríþrautin var haldin á Selfossi 9. ágúst sl. Bjart og fallegt veður var á meðan keppni stóð, en þó var nokkuð sterkur vindur sem reyndi á keppendur á hjólaleggnum.
Syntir voru 750 metrar í 25 metra laug, því næst hjólaðir 18 km um Selfoss og sveitirnar í kring og keppninni lauk með tæplega 5 km hlaupalegg um götur og stíga Selfoss.
Hjá konunum var það Ásta Rún Ingvadóttir, Ægi, sem sigraði nokkuð örugglega. Hún hefur nú þegar tryggt sér bikarmeistaratitilinn með því að sigra í þremur keppnum á árinu. Önnur varð Bethany Marguerite Bronkem, Ægi, og þriðja varð Diljá Heimisdóttir, UMFN. Þær voru báðar á verðlaunapalli í fyrsta sinn á árinu og glæsilegur árangur hjá þeim báðum.
Hjá körlunum var það Sigurður Örn Ragnarsson, Breiðabliki, sem sigraði keppnina, en hann hefur nú sigrað öll fjögur skiptin sem keppnin hefur verið haldin. Sigurður hefur jafnframt tryggt sér bikarmeistaratitilinn enn eitt árið. Annar varð Stefán Karl Sævarsson, Breiðabliki, en hann hefur einnig hafnað í öðru sæti öll fjögur árin sem keppnin hefur verið haldin. Þriðji varð svo Arkadiusz Przybyla, SH.
Þríþrautarsamband Íslands (ÞRÍ) þakkar keppendum og sjálfboðaliðum kærlega fyrir frábæra keppni.
Síðast en ekki síst þakkar ÞRÍ eftirtöldum aðilum kærlega fyrir stuðninginn við keppnina í ár:
- Ofsi.is, innflutningsaðila Orbea á Íslandi
- Útilíf, sem flytur inn Neversecond orkudrykki og gel
- Hótel Selfoss
- Ölgerðinni, sem sá um drykki
- Mar Seafood á Selfossi
- Sumri á Selfossi
- Sveitarfélaginu Árborg
Geir Ómarsson
Síðast breytt þann 18. August 2026 kl: 11:48 af Geir Ómarsson
