Hákon og Ásta sigruðu Norðurljósaþríþraut Skógarbaðana

Hákon og Ásta sigruðu Norðurljósaþríþraut Skógarbaðana

12 August 2026 13:18

Norðurljósaþraut Skógarbaðanna fór fram 25. júlí sl. Það blés nokkuð hressilega á keppendur í ár, en að öðru leyti var veðrið með ágætum og góð þátttaka í mótinu.

Í karlaflokki sigraði gamalkunnug kempa, Hákon Hrafn Sigurðsson úr Breiðabliki, nokkuð örugglega eftir að hafa leitt keppnina frá upphafi til enda. Hákon var um árabil nánast ósigrandi í þríþraut hér á landi og er nú að koma virkilega sterkur til baka eftir erfið meiðsli og gefur yngri keppendum ekkert eftir. Annar varð Geir Ómarsson, einnig gömul kempa, úr Ægi um 40 sekúndum á eftir Hákoni og þriðji varð Jakob Þór Magnússon úr Ægi. Jakob hefur komið virkilega sterkur til leiks í ár og er til alls líklegur á næstu árum.

Hjá konunum var spennandi keppni þar sem heimakonan Silja Jóhannesdóttir úr UFA-Norðurljósum, sem hefur verið ein af sterkari hjólreiðakonum landsins um árabil, mætti til leiks í sinni fyrstu þríþraut og hristi heldur betur upp í keppninni. Silja leiddi eftir hjólalegginn en á hlaupinu tók Ásta Rún Ingvadóttir úr Ægi fram úr öllum þegar hún hljóp kílómetrana fimm á glæsilegum tíma 20:05. Önnur varð Árný Eik Dagsdóttir úr Ægi og þriðja varð áðurnefnd Silja Jóhannesdóttir.

ÞRÍ óskar keppnishöldurum UFA-Norðurljósum og öllum keppendum til hamingju með glæsilega keppni og færir sjálfboðaliðum sérstakar þakkir fyrir þeirra mikilvæga framlag.


Geir Ómarsson