Hafdís Sigurðardóttir og Sigurður Örn Ragnarsson Íslandsmeistarar í ólympískri þríþraut.

Hafdís Sigurðardóttir og Sigurður Örn Ragnarsson Íslandsmeistarar í ólympískri þríþraut.

6 July 2026 17:35

Íslandsmótið í ólympískri þríþraut, Reykjavíkurþrautin, var haldið um helgina í blíðskaparveðri. Þetta er í fyrsta skiptið sem Íslandsmótið er haldið í Reykjavík.

Keppnin var haldin í samvinnu við Reykjavíkurborg og var í fyrsta skiptið hjólað á vegum þar sem lokað var fyrir bílaumferð.

Keppnin hófst á því að syntir voru tveir 500 metra hringir frá Skarfakletti. Þrátt fyrir frábærar aðstæður og spegilsléttan sjó var keppnin stytt úr 1.500 metrum í 1.000 metra þar sem samanlagður hiti sjávar og lofts var rétt undir viðmiðunarmörkum í reglum ÞRÍ fyrir styttingu. Sjávarhiti mældist um 11,5 gráður en lofthiti um 10 gráður.

Eftir sundið voru hjólaðir fimm 8 km hringir á Sæbrautinni, samtals 40 km, áður en hlaupið var meðfram Sæbrautinni, fram hjá Hörpu og til baka, samtals 10 km.

Mikil spenna var í kvennaflokki en svo fór að lokum að Hafdís Sigurðardóttir úr UFA-Norðurljósinu sigraði á tímanum 2:12:59. Önnur varð Sara Árnadóttir úr Ægi á tímanum 2:14:57 og þriðja varð Ásta Rún Ingvadóttir úr Ægi á tímanum 2:17:24.

Í karlaflokki sigraði Sigurður Örn Ragnarsson úr Breiðabliki með yfirburðum níunda árið í röð á tímanum 1:49:47. Annar varð Ingvar Þór Bjarnason úr Ægi á tímanum 2:01:15 og þriðji varð hinn síungi Hákon Hrafn Sigurðsson úr Breiðabliki á tímanum 2:01:37. Hákon var sá síðasti sem vann titilinn áður en Sigurður Örn tók við.

Í opna flokknum sigraði Louison Curschellas á tímanum 2:12:20, annar varð Júlíus Kristjánsson á tímanum 2:20:49 og þriðji varð Davíð Gunnarsson á tímanum 2:23:44.

Hjá konunum var það Julia Bojczuk sem sigraði á tímanum 2:24:00. Önnur varð Ólöf Edda Eðvarðsdóttir á tímanum 2:53:01 og þriðja varð Justine Yvonne Agnès Vanhalst á tímanum 3:01:07.

Einnig var keppt í liðakeppni en nokkur gríðarlega öflug lið mættu til leiks. Lið Team Bjarkvar Roy, sem skipað var Bjarkeyju Jónsdóttur, Ingvari Ómarssyni og Þorsteini Roy, sigraði á tímanum 1:44:25 eftir æsispennandi keppni við Team Sub Sigga, sem skipað var Patrik Viggo Vilbergssyni og Sindra Degi Birnissyni. Í þriðja sæti var svo lið Team Langa, sem skipað var Raúl Rodríguez Marcos, Andreu Kolbeinsdóttur og Grétu Rut Bjarnadóttur.


Geir Ómarsson

Síðast breytt þann 6. July 2026 kl: 17:39 af Geir Ómarsson