Ársþing ÞRÍ fór fram í dag

Ársþing ÞRÍ fór fram í dag

26 February 2022 19:00

Sjötta ársþing ÞRÍ fór fram í dag í sal Tækniskólans. Dagskrá var hefðbundin samkvæmt lögum ÞRÍ.  

Forseti ÞRÍ kynnti ársskýrslu sambandsins og gjaldkeri fór yfir rekstur síðasta árs ásamt því að kynna rekstraráætlun ársins 2022. Hagnaður af rekstri ÞRÍ var um 3,5 milljónir sem skýrist að mestu af auknum Lottó-tekjum og svo var kostnaður í kringum keppnir erlendis lægri en gert var ráð fyrir en fremsta þríþrautarkona landsins var frá keppni meirihlutann af árinu. 

Nokkrar lagabreytingar voru samþykktar á þinginu og eru þær helstar að stjórn ÞRÍ hefur nú heimild til að veita ákveðnum nefndum verkefni sem snúa að undirbúningi og úrlausn ákveðinna verkefna eftir atvikum hverju sinni. Fimm fastanefndir eru nú skilgreinar í lögunum, dómaranefnd, fræðslu- og útbreiðslunefnd, afreksnefnd, mótanefnd og siðanefnd. Breytingar voru gerðar til að bæta umgjörð um kjör og kosningar á þríþrautarþingi hverju sinni. Hlutverk innan stjórnar voru skýrð betur og sett inn ákvæði um hvernig skuli standa að stjórnarkjöri ef stjórnarmaður hættir störfum áður en kjörtímabili lýkur. Að lokum var bætt við ákvæði um skyldu til að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu mála vegna tilgreindra vanhæfnisástæðna.

Einnig var ný afreksstefna kynnt og samþykkt en vinna við endurbætur á eldri afreksstefnu fór fram í haust og vetur. Ný lög sambandsins og ný afreksstefna munu koma inn á vef sambandsins í byrjun mars. 

Að lokum var ný stjórn var kosin. Í framboði til forseta næstu tvö ár var Valerie Maier og var hún sjálfkjörin. Sædis Jónsdóttir og Margrét Ágústsdóttir voru kjörnar í aðalstjórn til tveggja ára. Fyrir í stjórn (kosin í fyrra til tveggja ára) eru Ingi B. Poulsen og Jón Ágúst Gunnlaugsson. Varamenn í stjórn til eins árs voru kjörin Rún Friðriksdóttir, Margrét J. Magnúsdóttir og Arnór Ásgeirsson. Á meðfylgjandi mynd er ný stjórn samankomin en Rún var fjarverandi.


Hákon Hrafn Sigurðsson