Hjördís með slifur í Ironman 70.3 Valencia

Hjördís með slifur í Ironman 70.3 Valencia

20 April 2026 09:52

Um helgina var keppt í hálfum járnmanni í Valencia á Spáni og heilum járnmanni í Texas.

Hjördís Ýr Ólafsdóttir (3SH) gerði sér lítið fyrir og hafnaði í öðru sæti í sínum aldursflokki á tímanum 4:57:33. Tíminn er einungis um tveimur mínútum frá besta tíma íslenskrar konu í vegalengdinni sem Hjördís á sjálf. Hún synti 1.900 metrana á 34:52 hjólaði 90 km á 2:36:40 í nokkuð hæðóttri braut og bætti síðan sinn besta tíma í hálfmaraþonhlutanum með því að hlaupa á frábærum tíma 1:36:39.

Með þessum árangri tryggði Hjördís sér þátttökurétt á heimsmeistaramótinu í vegalengdinni sem fram fer í Nice í september. Það verður spennandi að fylgjast með henni í keppnunum í sumar þar sem hún virðist vera í afar góðu formi.

Auk Hjördísar kepptu Ásdís Birta Alexandersdóttir, faðir hennar, handboltakempan Alexander Arnasson og Magnús Jens Hjaltested öll úr Breiðabliki.

Ásdís sem hóf að æfa þríþraut á síðasta ári náði glæsilegum tíma 5:45:12 og hafði betur gegn föður sínum, sem lauk keppni á 6:05:49. Hún hefur því montréttinn á næstu fjölskylduboðum. Magnús lauk sinni fyrstu keppni í vegalengdinni á flottum tíma, 6:44:06.

Einnig var keppt í heilum Ironman Texas um helgina. Þar kepptu Blikarnir Bjarni Jakob Gunnarsson og Már Þórarinsson sem einnig er fyrrverandi handboltakempa. Aðstæður voru krefjandi í Texas, mikill hiti og raki og þar sem hitastig vatnsins fór yfir 24,5°C var ekki heimilt að synda í blautbúningi.

Bjarni kláraði keppni á tímanum 9:39:44 og hafnaði í 13. sæti í sínum aldursflokki. Hann var lengi vel í baráttu um verðlaunasæti en hafði glímt við meiðsli í aðdraganda keppninnar og þurfti því að gefa aðeins eftir á hlaupinu. Már sýndi mikinn karakter og kláraði á 11:24:44 eftir að hafa unnið sig upp um 82 sæti í sínum flokki þrátt fyrir erfitt sund og laus stýri á hjólinu.


Geir Ómarsson

Síðast breytt þann 20. April 2026 kl: 09:54 af Geir Ómarsson