Þrjú voru sæmd gullmerki ÍSÍ á tíunda ársþingi ÞRÍ

Þrjú voru sæmd gullmerki ÍSÍ á tíunda ársþingi ÞRÍ

28 March 2026 18:17

Tíunda ársþing Þríþrautarsambands Íslands (ÞRÍ) fór fram um helgina í húsakynnum ÍSÍ. Dagskrá þingsins var hefðbundin samkvæmt lögum sambandsins.

Valdimar Leó Friðriksson var forseti þingsins og stýrði því, en Valerie Maier, forseti ÞRÍ, setti þingið og kynnti skýrslu stjórnar fyrir árið 2025. Geir Ómarsson, framkvæmdastjóri ÞRÍ, fór yfir rekstur síðasta árs og kynnti jafnframt rekstraráætlun ársins 2026.

Endurskoðuð afreksstefna ÞRÍ var samþykkt á þinginu en engar lagabreytingar lágu fyrir að þessu sinni.

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, ávarpaði þingið og flutti hvetjandi ræðu þar sem hann þakkaði fyrir gott samstarf á liðnu ári og mikilvægt framlag þríþrautarhreyfingarinnar til íþrótta og lýðheilsu í landinu. Hann lagði jafnframt áherslu á gildi sjálfboðastarfs og mikilvægi þess að meta og þakka þeim fjölmörgu sem leggja íþróttum lið.

Að ávarpi loknu sæmdi hann þrjá einstaklinga gullmerki ÍSÍ.

Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé hlaut gullmerkið fyrir störf sín sem fyrsti forseti ÞRÍ við stofnun sambandsins árið 2016, auk fjölmargra annarra starfa innan þríþrautarhreyfingarinnar og fyrir félag sitt, Breiðablik.

Gísli Ásgeirsson hlaut einnig gullmerki ÍSÍ. Hann gegndi lykilhlutverki í endurvakningu og uppbyggingu þríþrautar á Íslandi og var fyrsti formaður þríþrautarnefndar ÍSÍ árið 2010. Þá hefur hann sinnt fjölmörgum sjálfboðaliðastörfum fyrir sitt félag SH og nefndarsetu fyrir ÍSÍ.

Valerie Maier hlaut jafnframt gullmerki ÍSÍ. Hún hefur verið forseti ÞRÍ frá árinu 2020 og gegnt því embætti í sex ár. Valerie hefur einnig verið mjög virk í sjálfboðastarfi fyrir félag sitt, SH, auk þess að taka virkan þátt í alþjóðasamstarfi. Hún var nýverið kjörin ritari þróunarnefndar Evrópska þríþrautarsambandsins.

Að lokum var ný stjórn kosin. Aðalmenn í stjórn eru kosnir til tveggja ára og því er ekki kosið um öll sæti á hverju ársþingi. Að þessu sinni var kosið um þrjú sæti aðalmanna til tveggja ára. Valerie Maier var endurkjörin sem forseti og Rósfríð Kristín Áslaugsdóttir og Jón Axelsson voru endurkjörin í stjórn.

Fyrir í stjórn eru Elísabet Einarsdóttir og Hörður Sigurðarson, sem voru kjörin á þinginu 2025.

Í varastjórn voru kosin Ásdís Birta Alexandersdóttir, Halldór Benjamín Hreinsson og Sirrý Hallgrímsdóttir, sem var endurkjörin.

ÞRÍ vill þakka Ragnari Fjalari Sævarssyni og Katrínu Pálsdóttur fyrir vel unnin störf, en þau létu af störfum í stjórn.


Geir Ómarsson