14 September 2026 14:57
Heimsmeistaramótið í hálfum járnmanni (Ironman 70.3) fór fram í Nice í Frakklandi um helgina. Tvær konur kepptu fyrir Íslands hönd þetta árið þær Hjördís Ólafsdóttir og Valerie Maier en þær keppa báðar fyrir hönd SH .
Brautin í Nice er bæði krefjandi og falleg. Keppnin hefst á sundi í Miðjarðarhafinu en í ár voru nokkuð krefjandi aðstæður og þónokkur alda. Að sundi loknu tekur við mjög hæðótt og erfið hjólaleið sem verðlaunar hjólara sem fara hratt upp sem og niður brekkurnar. Heildar upphækkun í brautinni er rúmlega 1200 metrar.
Keppninni lýkur svo á flötu hlaupi eftir strandlengjunni Promenade des Anglais þar sem skjól fyrir sólinni er lítið sem ekkert.
Það er skemmst frá því að segja að Hjördís gerði sér lítið fyrir og endaði 19. sæti af 361 keppendum í aldursflokki á tímanum 5:37:23 sem er frábær árangur í mjög erfðiri braut og gríðarlega sterkri samkeppni. Valerie stóð sig einnig virkilega vel og endaði í 49 sæti af 198 keppendum í flokki 55-59 ára á tímanum 6:27:17.
Geir Ómarsson
Síðast breytt þann 14. September 2026 kl: 18:41 af Geir Ómarsson
