Ásta Rún sigrar í Belgrad

Ásta Rún sigrar í Belgrad

14 September 2026 14:31

Ellefu Íslendingar tóku þátt í hálfum járnmanni (IRONMAN 70.3) sem fram fór í Belgrad í Serbíu um helgina. 

Þar gerði Ásta Rún Ingvadóttir úr Ægi sér lítið fyrir og sigraði aldursflokk 18–24 ára, en þetta var hennar fyrsta keppni í þessari vegalengd. Árangurinn er enn eftirtektarverðari í ljósi þess að Ásta er aðeins á sínu fyrsta ári í þríþraut.

Ásta synti 1.900 metrana á 36:48 og var þá um sjö og hálfri mínútu á eftir Evu Bezlaj frá Slóveníu. Á hjólinu tók Ásta hins vegar málin í sínar hendur, hjólaði langhraðast í aldursflokknum og kom fyrst inn á skiptisvæðið í T2, sjö sekúndum á undan Evu.

Hlaupið var síðan æsispennandi þar sem Ásta og Eva skiptust á að vera í forystu. Að lokum hafði Ásta betur og tryggði sér sigurinn á tímanum 4:47:05. Tíminn er aðeins 17 sekúndum frá besta tíma íslenskrar konu í IRONMAN 70.3, sem Sara Árnadóttir setti fyrr í sumar.

Það verður virkilega spennandi að fylgjast með Ástu á næstu árum í þríþrautinni.


Geir Ómarsson

Síðast breytt þann 14. September 2026 kl: 14:33 af Geir Ómarsson