Hæfileikamótunarhelgi ÞRÍ

Hæfileikamótunarhelgi ÞRÍ

15 June 2026 11:23

Hæfileikamótunarhelgi ÞRÍ 2026 var haldin í Hafnarfirði.

Dagana 13.–14. júní stóð Þríþrautarsamband Íslands fyrir hæfileikamótunarhelgi fyrir ungt þríþrautarfólk á Íslandi. Markmið helgarinnar var að efla tæknilega færni þátttakenda, auka áhuga á markvissri þjálfun og styrkja tengsl innan íþróttarinnar.

Á laugardeginum var lögð áhersla á sund- og hlaupatækni þar sem þátttakendur fengu bæði fræðilega yfirferð og verklegar æfingar með myndgreiningu og einstaklingsbundinni endurgjöf. Á sunnudeginum beindist athyglin að hjólatækni og skipti æfingum.

Með fjölbreyttum æfingum, tæknivinnu og umræðum fengu þátttakendur dýrmæt verkfæri til að þróa færni sína áfram í þríþraut.

ÞRÍ þakkar öllum þátttakendum fyrir frábæra helgi og hlakkar til að fylgjast með framþróun þessa efnilega hóps á komandi misserum.

Ragnar Guðmundsson sá um yfirumsjón búðanna en honum til aðstoðar voru Guðlaug Edda Hannesdóttir Ólympíufari og Geir Ómarsson frá ÞRÍ. 


Geir Ómarsson

Síðast breytt þann 15. June 2026 kl: 11:24 af Geir Ómarsson