Sara með besta tíma íslenskrar konu í hálfum járnmanni

Sara með besta tíma íslenskrar konu í hálfum járnmanni

18 June 2026 10:24

Sara Árnadóttir gerði sér lítið fyrir og setti besta tíma íslenskrar konu frá upphafi í hálfum járnmanni þegar hún keppti í Ironman 70.3 Varsjá þann 7. júní síðastliðinn.

Sara synti 1.900 metrana á 37:34, hjólaði 90 km á frábærum tíma, 2:18:22, sem samsvarar tæplega 39 km/klst. meðalhraða, og lauk síðan keppninni með hálfmaraþoni á 1:44:28. Heildartími hennar var 4:46:48. Með þessu bætti hún fyrra Íslandsmet Hjördísar Ýrar Ólafsdóttur um tæpar níu mínútur, en Hjördís hafði átt besta tímann frá árinu 2017.

Ingvar Bjarnason náði einnig glæsilegum árangri í sömu keppni. Hjólaði hann 90 km á 2:08:08, sem er hraðasti hjólatími sem Íslendingur hefur náð í hálfum járnmanni. En Ingvar kláraði keppnina á 4:26:50.

Fjöldi Íslendinga keppti erlendis um helgina. Þórunn Margrét Gunnarsdóttir sigraði aldursflokk sinn með öruggum hætti í hinni krefjandi og skemmtilegu Escape from Alcatraz-keppni.

Þrír Íslendingar lögðu einnig leið sína til Subic Bay á Filippseyjum, þar sem keppt var í heilum og hálfum járnmanni við krefjandi aðstæður í miklum hita og raka. Stefán Karl Sævarsson sigraði aldursflokk sinn örugglega í heilum járnmanni á tímanum 10:41:36 en Stefán lenti í því að hlaupa út úr braut og lengdi þar með maraþonið í 45 km. Einar Latsi Sigurjónsson hafnaði í þriðja sæti í afar sterkum aldursflokki á tímanum 10:07:59.

Geir Ómarsson sigraði aldursflokk sinn í hálfum járnmanni á tímanum 4:44:49.


Geir Ómarsson