Átta Íslendingar kepptu á HM í þríþraut í Pontevedra

Átta Íslendingar kepptu á HM í þríþraut í Pontevedra

22 October 2026 12:24

Heimsmeistaramótið í ólympískri þríþraut fór fram dagana 23.–27. september í Pontevedra í Galisíu á norðvestur-Spáni.

Átta íslenskir keppendur tóku þátt í aldursflokkakeppninni og voru sex þeirra að keppa á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. Hópurinn stóð sig með mikilli prýði og sýndi góða frammistöðu í sterkri alþjóðlegri keppni.

Úrslit íslensku keppendanna:

  • Kári Steinn Kjartansson – 20–24 ára – 2:12:51 – 23. sæti

  • Bergur Óskarsson – 20–24 ára – 2:25:38 – 43. sæti

  • Úlfur Ólafsson – 20–24 ára – 2:28:21 – 46. sæti

  • Árný Eik Dagsdóttir – 25–29 ára – 2:40:51 – 35. sæti

  • Brynja Dögg Sigurpálsdóttir – 30–34 ára – 2:44:41 – 21. sæti

  • Samúel Ásgeir White – 45–49 ára – 2:16:06 – 18. sæti

  • Rúna Rut Ragnarsdóttir – 50–54 ára – 2:50:48 – 30. sæti

  • Geir Ómarsson – 50–54 ára – 2:08:47 – 4. sæti

Á næsta ári fer heimsmeistaramótið fram í Hamborg í Þýskalandi og stefnir Þríþrautarsamband Íslands að því að senda öflugan hóp keppenda til leiks.

Heimsmeistarar krýndir í atvinnumannaflokki

Í úrslitakeppni atvinnumanna sigruðu Matthew Hauser frá Ástralíu og Ólympíumeistarinn Cassandre Beaugrand frá Frakklandi.

Beaugrand tryggði sér jafnframt heimsmeistaratitilinn í kvennaflokki en í karlaflokki varð Portúgalinn Vasco Vilaça heimsmeistari þrátt fyrir að hafa hafnað í öðru sæti í lokakeppninni, rétt á eftir Hauser. Heimsmeistaratitlarnir ráðast af samanlögðum stigum úr mótaröðinni.

Nánari úrslit má sjá hér:

https://triathlon.org/events/2026-world-triathlon-age-group-championships-pontevedra/results


Geir Ómarsson