Fjórir Íslendingar luku heimsmeistaramótinu í Ironman á Hawaii

Fjórir Íslendingar luku heimsmeistaramótinu í Ironman á Hawaii

22 October 2026 16:23

Fjórir Íslendingar tóku þátt í heimsmeistaramótinu í Ironman sem fram fór í Kona á Hawaii þann 10. október síðastliðinn. Keppendur þurftu að glíma við krefjandi aðstæður þar sem bæði öldugangur og sterkir vindar settu svip sinn á keppnina.

Í ár kepptu karlar og konur aftur saman á Hawaii, en undanfarin ár hefur heimsmeistaramótið farið fram í aðskildum keppnum kynjanna í Nice í Frakklandi og Kona á Hawaii.

Heimsmeistaramótið í Kona er þekkt fyrir erfiðar aðstæður þar sem mikill hiti, raki og sterkir vindar reyna á þol og úthald keppenda. Í ár létu veðurguðirnir svo sannarlega til sín taka. Töluverður öldugangur var á 3,8 km sundleiðinni og á 180 km hjólaleiðinni blésu hinir frægu Mumuku-vindar hressilega á keppendur, sérstaklega í nágrenni Hawi þar sem snúningspunktur hjólaleiðarinnar er. Leiðin til baka reyndist síðan mörgum erfið þar sem keppendur þurftu að glíma við mótvind stóran hluta leiðarinnar, eða í um 70 kílómetra.

Að loknum hjólreiðunum tók svo við heilt maraþon, 42,2 km, í hitanum á Hawaii. Það er því óhætt að segja að keppendur hafi þurft að hafa fyrir því að komast yfir marklínuna í ár.

Íslensku keppendurnir stóðu sig allir vel og luku keppni með eftirfarandi árangri:

  • Stefán Karl Sævarsson – 10:09:20 – 91. sæti í flokki 40–44 ára.

  • Einar Sigurjónsson – 10:35:25 – 122. sæti í flokki 45–49 ára.

  • Geir Ómarsson – 10:14:48 – 40. sæti í flokki 50–54 ára.

  • Trausti Gunnarsson – 12:14:05 – 12. sæti í flokki 65–69 ára.

Heimsmeistaramótið í Kona er einn stærsti viðburður þríþrautaríþróttarinnar ár hvert og þangað komast keppendur með því að vinna sér inn keppnisrétt á Ironman-mótum víðs vegar um heiminn.

Það er því glæsilegur árangur hjá íslensku keppendunum fjórum að hafa tryggt sér sæti á heimsmeistaramótinu og lokið þessari sögufrægu keppni við krefjandi aðstæður.

Í atvinnumannaflokki var mikil dramatík í keppni beggja kynja. Hjá konunum fagnaði Bandaríkjakonan Taylor Knibb sigri eftir að norska konan Solveig Løvseth, heimsmeistari frá 2025, örmagnaðist og féll til jarðar þegar aðeins um einn kílómetri var eftir af maraþoninu.

Svipuð dramatík átti sér stað í karlaflokki þar sem Daninn Magnus Ditlev hafði verið í forystu en varð að láta í minni pokann fyrir hitanum og örmagnaðist þegar hlaupið var rúmlega hálfnað. Frakkinn Vincent Luis nýtti tækifærið og tryggði sér heimsmeistaratitilinn í sinni fyrstu keppni á heimsmeistaramótinu í Ironman á Hawaii. Sigurinn var ekki síður eftirminnilegur fyrir þær sakir að Luis hafði tilkynnt fyrir mótið að þetta yrði síðasta keppnin á ferlinum.


Geir Ómarsson