Önnur hæfileikamótunarhelgi ÞRÍ 2026

Önnur hæfileikamótunarhelgi ÞRÍ 2026

29 October 2026 14:23

Dagana 9.–10. október fór fram önnur hæfileikamótunarhelgi Þríþrautarsambands Íslands á árinu. Markmið verkefnisins er að styðja við uppbyggingu ungs þríþrautarfólks með fræðslu, mælingum og markvissri þjálfun.


Að þessu sinni var áhersla lögð á þolfræðilegar mælingar og markmiðasetningu. Fyrri daginn gengust þátttakendur undir þolpróf á hjóli þar sem loftháð og loftfirrt geta þeirra var metin. Slíkar mælingar veita mikilvægar upplýsingar um líkamlega getu og nýtast við að einstaklingsmiða æfingaákefð og skipuleggja þjálfun með það að markmiði að bæta frammistöðu.

Seinni daginn var farið yfir niðurstöður mælinganna og hvernig nýta mætti þær í daglegri þjálfun. Einnig var unnið með markmiðasetningu þar sem þátttakendur skilgreindu eigin ferlis-, frammistöðu- og árangursmarkmið og leiðir til að ná þeim.

Helgin tókst vel og sýndu þátttakendur mikinn áhuga og metnað.


Geir Ómarsson