Glæsilegur árangur Íslendinga í erlendum þríþrautarkeppnum í haust

Glæsilegur árangur Íslendinga í erlendum þríþrautarkeppnum í haust

22 October 2026 15:07

 

Fjöldi Íslendinga lagði leið sína í erlendar þríþrautarkeppnir á haustmánuðum og stóð sig með miklum ágætum. Margir komust á verðlaunapall í sínum aldursflokkum og nokkrir tryggðu sér keppnisrétt á heimsmeistaramótum í hálfum og heilum járnkarli.

 

IRONMAN  Emilia-Romagna - Ítalía

Ásta Reynisdóttir Parker og Kristín Magnúsdóttir náðu báðar frábærum árangri í IRONMAN Emilia-Romagna á Ítalíu. Ásta hafnaði í 2. sæti í aldursflokknum 55–59 ára og Kristín varð einnig í 2. sæti í sínum aldursflokki, 65–69 ára.

Ásta tryggði sér jafnframt keppnisrétt á heimsmeistaramótinu í IRONMAN sem fram fer á Hawaii árið 2027.

IRONMAN Cascais – Portúgal

Í Portúgal sigraði Hrefna Guðmundsdóttir sinn aldursflokk, 65–69 ára, í hálfum járnkarli á IRONMAN Cascais.

Hjördís Ólafsdóttir náði einnig glæsilegum árangri í heilum járnkarli þegar hún hafnaði í 3. sæti í aldursflokknum 40–44 ára og tryggði sér keppnisrétt á heimsmeistaramótinu í IRONMAN á Hawaii á næsta ári.

Ocean Lava Montenegro – Svartfjallaland

Stór hópur Íslendinga tók þátt í Ocean Lava Montenegro sem fram fór í Kotor í Svartfjallalandi. Keppt var í hálfum járnkarli og ólympískri þríþraut og náðu íslensku keppendurnir frábærum árangri.

Þórunn Gunnarsdóttir (Tóta) gerði sér lítið fyrir og tryggði sér öruggan sigur í ólympísku þrautinni. Fjöldi annarra Íslendinga komst á verðlaunapall í sínum aldursflokkum.

Ólympísk þríþraut

  • 1. sæti – Þórunn Gunnarsdóttir, 50–59 ára

  • 3. sæti – Bergur Ingi Óskarsson, 18–29 ára

  • 3. sæti – Elín Jóhannesdóttir, 50–59 ára

Hálfur járnkarl

  • 1. sæti – Kristín Laufey Steinadóttir, 45–49 ára

  • 1. sæti – Már Þórarinsson, 55–59 ára

  • 1. sæti – Trausti Jarl Valdimarsson, 65–69 ára

  • 2. sæti – Kári Steinn Kjartansson, 18–24 ára

  • 2. sæti – Inga Dagmar Karlsdóttir, 50–54 ára

  • 3. sæti – Júlía Þorvaldsdóttir, 50–54 ára

  • 3. sæti – Ari Oddsson, 50–54 ára

  • 3. sæti – Finnbogi Þórarinsson, 60–64 ára

Árangur íslensku keppendanna í þessum þremur mótum sýnir vel þann kraft sem er í íslenskri þríþraut og er ánægjulegt að sjá hversu margir ná góðum árangri á alþjóðlegum vettvangi.


Geir Ómarsson

Síðast breytt þann 22. October 2026 kl: 15:10 af Geir Ómarsson