29 October 2026 16:47
Sigurður Örn Ragnarsson Breiðabliki og Frey Eduardo Norðurljósunum sóttu nýverið World Triathlon Level 1 þjálfaranámskeið á vegum Alþjóðaþríþrautarsambandsins (World Triathlon).
Alls tóku 18 þjálfarar þátt í námskeiðinu, meðal annars frá Íslandi, Finnlandi, Króatíu, Póllandi, Eistlandi og Svartfjallalandi. Leiðbeinendur voru þau Scott Murray og Denise Murphy, sem búa yfir mikilli reynslu og þekkingu á þjálfun í þríþraut.
Á námskeiðinu var lögð áhersla á þjálfunaraðferðir, verklegar æfingar og miðlun þekkingar og reynslu milli þátttakenda.
Frey Eduardo var afar ánægður með námskeiðið og segir það hafa gefið sér nýja sýn á eigin þjálfunaraðferðir.
„Þetta var frábært námskeið þar sem við fengum tækifæri til að læra, æfa okkur í þjálfun og skiptast á hugmyndum við aðra þjálfara. Ég fékk margar nýjar hugmyndir sem ég get nýtt í mínu starfi og það var ómetanlegt að læra af jafn reynslumiklum leiðbeinendum. Ég tek því heilmikið með mér heim og hlakka til að miðla þekkingunni áfram til minna iðkenda og annarra þjálfara,“ segir Frey.
Þátttaka í námskeiðinu er liður í því að efla þekkingu og menntun þríþrautarþjálfara hér á landi og stuðla þannig að áframhaldandi uppbyggingu íþróttarinnar á Íslandi.
Geir Ómarsson
Síðast breytt þann 29. October 2026 kl: 16:49 af Geir Ómarsson
