Fjölmiðlafulltrúi

Fjölmiðlafulltrúi

2 December 2021 10:54

ÞRÍ óskar eftir fjölmiðlafulltrúa

Þríþrautarsamband Íslands óskar eftir að ráða fjölmiðlafulltrúa í hlutastarf.

Fjölmiðlafulltrúi sinnir fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum s.s. frétta- og greinaskrifum og hefur umsjón með samfélagsmiðlum.

Ráðið verður í starfið til eins árs og miðast starfshlutfall við 4 klst á viku.

Helstu verkefni:

  • Umsjón með vikulegum greinaskrifum og fréttabirtingum á heimasíðu ÞRÍ
  • Umsjón með fréttum af keppnum sem haldnar eru á Íslandi og erlendis
  • Kynningar á viðburðum á vegum ÞRÍ ásamt umfjöllun um þá.
  • Umsjón með umfjöllun um afreksíþróttafólk
  • Umsjón með samfélagsmiðlum
  • Samskipti við fréttamenn, ljósmyndara og aðra sem koma að fjölmiðlahlið sambandsins
  • Vera þríþrautarfélögum innan handar varðandi fjölmiðlamál
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur:

  • Brennandi áhugi á þríþraut
  • Áhugi á miðlun upplýsinga og markaðsstarfi
  • Reynsla af frétta og greinaskrifum er kostur
  • Mjög góð tölvukunnátta og þekking á samfélagsmiðlum
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og gott hugmyndaflug
  • Hæfni í mannlegum samskiptum

Frekari upplýsingar umstarfið veitir Valerie Maier í síma 8688323.

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda inn ferilskrá og kynningarbréf á netfangið info@triathlon.is.

Umsóknarfrestur er til og með 15 desember 2021.

 


Hákon Jónsson