Guðlaug landaði 2. sæti á Filipseyjum

Guðlaug landaði 2. sæti á Filipseyjum

6 May 2024 14:31

Þríþrautarkonan Guðlaug Edda Hennesdóttir hafnaði um helgina í öðru sæti í keppni í sprettþraut á Filipseyjum um helgina. 

Þetta er önnur helgin í röð sem að Guðlaug kemst á verðlaunapall en hún sigraði keppni í Nepal fyrir viku síðan. Árangurinn fleytir Guðlaugu upp um 33 sæti á heimslistanum á hún nú mjög góða möguleika á boðssæti á Ólympíuleikana í sumar.


Guðlaug kom fjórða upp úr sundinu en var mjög fljót að vinna sig upp í fyrsta hóp á hjólinu þar sem hún hélt uppi hraðanum mest allan tímann. Síðasta greinin í þríþraut er hlaupið en 8 stelpur hófu hlaupið á sama tíma en Guðlaug átti glæsilegt hlaup og hljóp kílómetrana 5 á 18 mínútum og 9 sekúndum í miklum hita og raka og hafnaði í öðru sæti einungis 10 sekúndum á eftir sigurvegaranum Hye Rim Jeong frá Suður-Kóreu.


Næsta keppni og sú síðasta í Asíutúrnum verður Ólympísk þríþraut í Kína um næstu helgi.

 

Nánari úrslit:

https://triathlon.org/results/result/2024_asia_triathlon_cup_subic_bay/630225


Geir Ómarsson

Síðast breytt þann 6. May 2024 kl: 14:32 af Geir Ómarsson