Sigurður og Katrín Íslandsmeistarar í Ólympískri þríþraut 2022

Sigurður og Katrín Íslandsmeistarar í Ólympískri þríþraut 2022

25 June 2022 14:00

Íslandsmeistaramótið í Ólympískri þríþraut fór fram í dag við góðar aðstæður á Laugarvatni. 

Í þrautinni voru syntir tveir 750 metra hringir í Laugarvatni, hjólaðar tvær 20km umferðir á Laugarvatnsvegi og að loknum hlaupnir tveir 5km utanvega hringir við Laugarvatn.  Þetta var jafnframt 10. árið í röð þar sem keppt í þríþraut á Laugarvatni. Í kvennaflokki sigraði Katrín Pálsdóttir úr Sundfélagi Hafnarfjarðar á tímanum tveir tímar, 41 mínúta og 24 sekúndur.  Önnur varð Sigurlaug Helgadóttir úr Sundfélaginu Ægi á tímanum tveir tímar, 50 mínútur og 19 sekúndur. Hildur Árnadóttir, einnig úr Ægi, varð 3. á tímanum þrír tímar, 16 mínútur og 29 sekúndur. Þetta var jafnframt fyrsti Íslandsmeistaratitill Katrínar í þríþraut. 

Í karlaflokki sigraði Sigurður Örn Ragnarsson en hann kom í mark á tímanum tveir tímar, 9 mínútur og 54 sekúndu en þetta var 5. skiptið í röð sem Sigurður verður Íslandsmeistari í Ólympískri þríþraut.  Stefán Karl Sævarsson kom 2. í mark á tímanum tveir tímar, 17 mínútur og 59 sekúndur og 3. varð Bjarni Jakob Gunnarsón á tímanum tveir tímar, 23 mínútur og 12 sekúndur en þeir keppa allir fyrir Breiðablik. 

Í byrjendaflokki sigruðu Júlíana Þóra Hálfdánardóttir úr Breiðablik á tímanum þrír tímar, 21 mínúta og þrjár sekúndur og Richard Lee Blurton úr Sundfélagi Hafnarfjarðar á tímanum 2 tímar, 47 mínútur og 14 sekúndur. 

Í stigakeppni félaga sigraði Sundfélagið Ægir, Breiðablik varð í öðru sæti og Sundfélag Hafnarfjarðar í 3. sæti.

Stutt myndbrot frá keppninni hér https://youtu.be/voTJ8kvS5LE


Hákon Hrafn Sigurðsson

Síðast breytt þann 25. June 2022 kl: 19:34 af Hákon Hrafn Sigurðsson