2 February 2026 15:58
Þríþrautarsamband Íslands mun í ár senda lið til keppni á heimsmeistaramóti aldursflokka í Ólympískri þríþraut sem fram fer í borginni Pontevedra í Galisíu á norðvesturströnd Spánar, dagana 24.-27. september.
Keppt verður í öllum aldursflokkum frá 18–19 ára og upp í 75 ára og eldri.
Vegalengdir í boði:
-
Ólympísk þríþraut: 1500 m sund – 40 km hjól – 10 km hlaup
-
Aquabike: 1500 m sund – 40 km hjól
-
Sprettþraut: 750 m sund – 20 km hjól – 5 km hlaup
-
Ofursprettþraut liðakeppni: 250 m sund – 6 km hjól – 1,5 km hlaup á hvern keppanda
(2 konur og 2 karlar í hverju liði)
Athugið:
Í Ólympískri þraut og Aquabike er heimilt að keppa á þríþrautarhjólum með liggistýri (non-draft legal). Í sprettþraut og liðakeppni gilda hins vegar draft-legal reglur og þar eru liggistýri ekki leyfð.
Til að kanna áhuga á þátttöku óskar ÞRÍ eftir því að áhugasamir skrái sig fyrir 22. febrúar nk. með því að fylla út skráningarformið hér að neðan. Kynningarfundur verður síðan haldinn í framhaldinu (lok feb/byrjun mars). Skráning á þessu stigi er ekki bindandi:
https://forms.office.com/e/pQWsFTANDt
Skilyrði fyrir þátttöku:
-
Keppandi þarf að vera skráður í þríþrautarfélag á Íslandi
-
Hafa reynslu af keppni þar sem synt er í sjó eða stöðuvatni
Athugið að á mótinu keppa almennt sterkustu keppendur hvers lands. Því hentar mótið helst þeim sem eru fyrir ofan miðju í sínum aldursflokki í keppnum hér á landi.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins en einnig má senda tölvupóst á info@triathlon.is :
https://triathlon.org/events/2026-world-triathlon-age-group-championships-pontevedra
Geir Ómarsson
Síðast breytt þann 2. February 2026 kl: 16:26 af Geir Ómarsson
