16 June 2026 11:26
Sprettþraut 3SH var haldin sunnudaginn 7. júní sl. í blíðskaparveðri.
Keppnin var önnur keppnin í bikarmótaröð Þríþrautarsambands Íslands.
Keppendur hófu keppni á 750 metra sundi í Ásvallalaug. Að því loknu hjóluðu þeir 20 km um Krýsuvíkurveg og lauk keppninni með 5 km hlaupi um Vellina.
Vel var mætt til leiks og fjölmörg ný nöfn voru á keppendalistanum. Það sama má segja um verðlaunapallinn þar sem nokkrir keppendur stigu á pall í fyrsta sinn.
Í kvennaflokki sigraði Ásta Rún Ingvadóttir úr Ægi glæsilega á tímanum 1:14:34. Ásta er á sínu fyrsta ári í þríþraut og sýndi mikinn styrk í hlaupinu, þar sem hún hljóp sig úr þriðja sæti eftir hjólreiðarnar upp í efsta sætið með frábærum 5 km hlaupatíma, 20:00. Í öðru sæti, tæpri mínútu á eftir Ástu, varð Ewa Przybyla úr Breiðabliki sem hefur snúið sterkt til baka eftir barnsburð. Þriðja varð Eydís Ósk Kolbeinsdóttir úr Ægi, einnig á sínu fyrsta ári í þríþraut. Eydís átti frábært sund og kom fyrst allra upp úr lauginni á tímanum 10:02.
Í karlaflokki voru kunnugleg andlit í tveimur efstu sætunum. Sigurður Örn Ragnarsson úr Breiðabliki sigraði með yfirburðum á glæsilegum tíma, 57:37. Í öðru sæti varð Hákon Hrafn Sigurðsson, einnig úr Breiðabliki, sem virðist vera að ná sér vel á strik á ný eftir meiðsli. Þriðji varð Jakob Þór Magnússon úr Ægi. Jakob er á sínu fyrsta ári í þríþraut og hefur þegar sýnt að hann er keppandi sem vert verður að fylgjast með á komandi árum.
Að vanda var keppnin afar vel heppnuð og eiga keppnishaldarar 3SH ásamt fjölmörgum sjálfboðaliðum mikið hrós skilið fyrir glæsilegt mótahald.
Geir Ómarsson
Síðast breytt þann 16. June 2026 kl: 11:27 af Geir Ómarsson
