5 March 2026 09:23
10. ársþing ÞRÍ verður haldið í Reykjavík 28. mars 2026 kl 13-16.
Framboð til stjórnar þríþrautarsambandsins og annarra embætta skulu berast sambandinu á skrifstofu þess eða með rafrænum hætti eigi síðar en tveimur vikum fyrir þing.
Dagskrá þingsins er samkvæmt lögum ÞRÍ:
Dagskrá þríþrautarþings skal vera:
1. Þingsetning.
2. Kynning nýrra þríþrautarfélaga og deilda
3. Kosning þriggja manna í kjörbréfanefnd. Nefndin skal yfir fara kjörbréf og gera grein fyrir
störfum sínum áður en 7. dagskrárliður hefst.
4. Kosning þingforseta.
5. Kosning þingritara.
6. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu sína.
7. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga ÞRÍ.
8. Umræður um skýrslu stjórnar auk umræðu og atkvæðagreiðslu um reikninga sambandsins.
9. Stjórnin leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfstímabil, ásamt tillögum um félagagjöld
og keppnisgjöld.
10. Lagðar fram lagabreytingar sem stjórninni hafa borist með löglegum fyrirvara.
11. Teknar til umræðu aðrar tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnarinnar.
12. Umræður og atkvæðagreiðsla um lagabreytingar og framkomin mál.
13. Önnur mál.
14. Kjörnefnd kynnir frambjóðendur til embætta.
15. Kosning forseta.
16. Kosning stjórnar sbr. 9. gr.
17. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
18. Kosning formanna í nefndir,
19. Kosning kjörnefndar til eins árs.
20. Kosning fulltrúa og varafulltrúa ÞRÍ á Íþróttaþing ÍSÍ árið sem Íþróttaþing fer fram, skv. lögum
ÍSÍ.
21. Þingslit.
Atkvæðarétt á þinginu hafa tilnefndir fulltrúar þeirra þríþrautarfélaga sem mynda sambandið við boðun þingsins. Hvert félag hefur tvo fulltrúa á þinginu.
Auk þingfulltrúa eiga rétt á þingsetu og hafa þar málfrelsi og
tillögurétt:
-stjórn og varastjórn ÞRÍ
-skoðunarmenn reikninga ÞRÍ
-fulltrúar héraðssambanda og íþróttabandalaga sem hafa þríþrautarfélög innan sinna vébanda.
Þess utan getur stjórn ÞRÍ boðið aðilum þingsetu ef hún telur ástæðu til.
Kjörgengi skal miðast við lögræðisaldur.
Stjórn ÞRÍ bíður öll velkomin á þingið.
Geir Ómarsson
Síðast breytt þann 5. March 2026 kl: 09:58 af Geir Ómarsson
