ÞRÍ óskar eftir framboðum í stjórn

ÞRÍ óskar eftir framboðum í stjórn

24 March 2025 15:47

Níunda þríþrautarþing fer fram sunnudaginn 30. mars 2025

- Auglýst er eftir framboðum í stjórn ÞRÍ -

Tvö sæti í aðalstjórn til tveggja ára

Þrjú sæti í varastjórn til eins árs
 

Einnig er kosið í nefndir en nefndir á vegum ÞRÍ eru:

Dómaranefnd, hefur umsjón með, dómaramálum og öllum reglum þeim tengdum, efri stigum dómarafræðslu og útgáfu á mótareglum í þríþraut.

Fræðslu- og útbreiðslunefnd, hefur umsjón með stefnumótun í fræðslumálum og námskeiðahaldi innan íþróttahreyfingarinnar.  Sinnir ráðgjafahlutverki og útbreiðslu í samvinnu við stjórn ÞRÍ og aðrar nefndir sambandsins. Er ráðgefandi um verkefni, æfingar,  keppnishald, annast upplýsingamiðlun og almannatengsl.

Afreksnefnd, hefur leiðbeinandi hlutverk gagnvart afreksstefnu ÞRÍ.  Nefndin skipuleggur og annast störf í samræmi við afreksstefnu og aðgerðaáætlun ÞRÍ á sviði afreksmála.

Mótanefnd, vinnur með langtímaskipulag keppnishalds í þríþraut og útgáfu mótaskráar.

Siðanefnd, tekur við og fjallar um erindi sem nefndinni berast og beitir lausnarmiðuðum leiðum við að leysa úr þeim ágreiningi sem kemur upp hverju sinni.  Nefndin hefur heimild til að úrskurða um réttmæti erindis með hliðsjón af lögum og siðareglum ÞRÍ. Siðanefnd sinnir eftirfylgni með úrskurðum og er æskilegt að a.m.k 1 nefndarmaður sé með lögfræði menntun.  Siðanefnd er ráðgjafaraðili og leiðbeinir stjórn ÞRÍ, félagsmönnum og sambandsaðilum um siðamál.

 

Framboð sendist á aðalnetfang Þríþrautarsambandsins fyrir föstudaginn 28. mars - info@triathlon.is


Geir Ómarsson

Síðast breytt þann 24. March 2025 kl: 15:52 af Geir Ómarsson