Úrslit úr Kópavogsþríþrautinni

Úrslit úr Kópavogsþríþrautinni

8 May 2022 12:00

Keppnistímabilið í þríþraut hófst í dag þegar ofursprettþrautin í Kópavogi fór fram. 

Þetta var 18. árið í röð sem keppnin er haldin en í henni eru syntir 400m í Kópavogslaug, hjólaðir 4  hringir um Kársnses, samtals 10,5km, og að lokum hlaupnir 3,5km. Þátttakendur voru um 70 í opnum flokki og 30 í ungmenna- og byrjendaflokkum. Aðstæður voru ágætar í morgun og góðir tímar náðust í brautinni. Í kvennaflokki sigraði Helen Ólafsdóttir úr Ægi á tímanum 42 mínútur og 52 sekúndur. Í 2. sæti varð Sigurlaug Helgadóttir úr Ægi og í 3. sæti varð Valerie Helene Maier úr Sundfélagi Hafnarfjarðar.  Í karlaflokki sigraði Sigurður Örn Ragnarsson á tímanum 33 mínútur og 52 sekúndur, í 2. sæti varð Bjarni Jakob Gunnarsson og í 3. sæti varð Stefán Karl Sævarsson en þeir keppa allir fyrir Breiðablik. Byrjendaflokk sigruðu Brynja Dögg Sigurpálsdóttir og Nökkvi Norðfjörð. Í stigakeppni félaga varð Sundfélagið Ægir efst með 463 stig, Breiðablik í 2. sæti með 316 stig og Sundfélag Hafnarfjarðar í 3. sæti með  127 stig.


Hákon Hrafn Sigurðsson

Síðast breytt þann 8. May 2022 kl: 16:23 af Hákon Hrafn Sigurðsson